„Frækubbur“

Það er mun meira af trefjum, vítamínum og steinefnum í grófum kornvörum en þeim sem meira eru möluð. Frækubburinn er uppfullur af næringarríkum fræjum og möndlum. Uppskriftin passar í tvo hleifa.

Þú þarft:

  • 300 g sólblómafræ
  • 180 g hörfræ
  • 130 g skornar hesilhnetur eða möndlur
  • 300 g haframjöl
  • 4 msk chiafræ
  • 6 msk psyllium husk duft
  • 2 tsk sjávarsalt
  • 2 msk síróp
  • 6 msk brædd kókosolía
  • 700 ml vatn

Aðferð

  1. Blandið öllum þurrefnum saman í skál. Hrærið saman sýrópíð, kókosolíuna og vatnið. Bætið þessu því næst við þurrefnin og blandið vel saman.
  2. Deigið á að vera þykkt en þó ekki of þykkt. Ef deigið er of þykkt til að hræra það bætið þá 1-2 msk af vatni við þar til deigið verður hæfilega þykkt.
  3. Degið er sett í tvö form (sílikonform eða olíuborið form). Gott er að slétta úr yfirborðinu og látið deigið standa í 2 klst áður en það er bakað.
  4. Brauðið er bakað við 175 gráður í 20 mínutúr. Takið brauðið því næst úr forminu og snúið því á hvolf á plötu og bakið í 30-40 mínútur.
  5. Brauðið er tilbúið þegar það virðist holt að innan þegar slegið er ofan á það.
  6. Brauðið geymist í lokuðum umbúðum í um 5 daga og einnig má frysta það.

Related posts

„Mikilvæg viðurkenning á starfi Heilsustofnunar“

„Endurhæfing skiptir miklu fyrir lífsgæði fólks“

„Endurhæfing lykilþáttur í öflugu heilbrigðiskerfi“