Tortillur með baunum og salsa

Tortillur úr eldhúsi Heilsustofnunar Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Hér er hollustan í fyrirrúmi og heimagert salsa og guacamole gera gott enn betra. Uppskriftin miðast við fjórar tortillur.

Þú þarft:

  • 4 heilhveiti tortillur
  • 300 g soðnar nýrnabaunir
  • 1 saxaður laukur
  • 4 saxaðir hvítlauksgeirar
  • 1 tsk kanel
  • 100 g gulrætur í teningum
  • 100 g sellerírót í teningum
  • 1 dós tómatar
  • 1/2 bolli rifinn ostur

Salsa:

  • 2 stórir tómatar eða 4 litlir
  • 1 paprika
  • 2 vorlaukar
  • 1 grænt chili
  • 1 lime, safinn
  • Salt og pipar

Guacamole:

  • 1 þroskað avocado
  • 1 tómatur
  • 3 vorlaukar
  • 1 lime, safinn
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Brúnið grænmetið með kanil og bætið við tómötum og nýrnabaunum. Sjóðið í um 10 mínútur. Setjið fyllinguna í tortillurnar og bakið í ofni við 200 gráður í 10 mínútur.
  2. Saxið allt í salsað og blandið saman í skál.
  3. Stappið avocado og setjið í skál og bætið við fínt skornum tómat og vorlauk. Smakkið til með lime, salti og pipar.
  4. Berið tortillurnar fram með guacamole, salsa, hýðishrísgrjónum og góðu salati.

Related posts

„Endurhæfing skiptir miklu fyrir lífsgæði fólks“

„Endurhæfing lykilþáttur í öflugu heilbrigðiskerfi“

Fjögurra ára þjónustusamningur