Morgungrautur Gabríels

Morgunmatur er ein af mikilvægustu máltíðum dagsins. Hér er uppskrift af bygggraut úr smiðju Móður Jarðar í Vallanesi. Uppskriftin hér er aðeins breytt að smekk undirritaðs. Endilega skiptið út ávöxtum, berjum eða öðru sem þið teljið henta. Hægt er að geyma grautinn í ísskáp í 5-7 daga.

Þú þarft:

  • 5 dl bankabygg
  • 2 lítrar vatn
  • 2 epli skorin í litla teninga (eða perur)
  • 1-2 dl rúsínur (eða sveskjur)
  • 1 msk kanill
  • 2 tsk salt
  • 1 dl möndlur með hýði
  • 1 dl sólblómafræ (eða graskersfræ)
  • 1 dl kókosflögur

Aðferð:

  1. Allt sett í pott og látið sjóða í 15 mínútur. Látið standa í 8-12 tíma eða yfir nótt.
  2. Grauturinn er góður kaldur með mjólk eða rjóma en mörgum finnst betra að hita hann upp.

Related posts

Blómkálsklattar með hnetusósu

„Stór hópur fólks sem lendir í kulnun eða örmögnun“

Ætihvönn í allan mat!