Þorskur með pestó og mozzarella

Sérdeilis einfaldur og fljótlegur fiskréttur frá „Gott í matinn“. Ég notaði þorskhnakka en ekki ýsu og grænt pestó en ekki rautt. Buffalo mozzarella er toppurinn. Fá hráefni og lykilatriði að velja aðeins það besta. Passaði ljómandi vel fyrir fimm með góðum hrísgrjónum frá Fiska á Nýbýlaveginum. Næst ætla ég að prófa 15 mínútur á 200 gráðum.

Þú þarft:

  • 850 g þorskhnakkar
  • 1 dós pestó
  • 110 g döðlur
  • 2 Buffalo mozzarella kúlur
  • Fersk basilíka
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Skerið fiskinn í bita og blandið við pestó og döðlur. Setjið í eldfast fat og kryddið með salti og pipar. Brytjið ostinn yfir og skreytið með ferskri basilíku.
  2. Hitið í ofni við 180 gráður í 20 mínútur. Setjið ferska basilíku yfir og berið fram með hrísgrjónum, salati eða hvítlauksbrauði.

Mynd: Pálmi Jónasson.

Related posts

Konur í miklum meirihluta

2.3 „Svínadalur elur ær og ógnar sauðafjölda“

Matreiðslunámskeið – Grænmetisfæði