Súkkulaðiterta með avókadó sem við fengum hjá Sollu á Gló og er á matarblogginu www.maedgurnar.is. Dásamlega einföld terta með einungis fjórum hráefnum. Best er að nota sykurlaust súkkulaði og helst lífrænt en dökkt súkkulaði er með mun minna sykurinnihaldi en ljóst. Við bárum tertuna fram með maukuðum hindberjum, okkur fannst ekkert þurfa að sæta hindberin en það fer eftir smekk. Sumum finnst gott að blanda smá hlynsírópi saman við hindberin til að sæta þau.
Súkkulaðiterta:
- 2,5 dl þurrkaðar döðlur
- 2,5 dl pekanhnetur
- Smávegis sjávarsalt
Aðferð:
- Malið pekanhneturnar gróft í matvinnsluvél. Bætið döðlunum út í og blandið þar til þetta klístrast vel saman.
- Þrýstið þessu niður í form og setjið inn í frysti á meðan þið búið til fyllinguna.
Fylling:
- 2 stór avókadó eða 4 lítil
- 200 gr sykurlaust dökkt súkkulaði
Aðferð:
- Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði, takið af hellunni og látið kólna án þess að súkkulaðið stífni.
- Afhýðið avókadóin og setjið í matvinnsluvél. Bætið súkkulaðinu við og maukið þar til þetta er orðið alveg silkimjúkt og kekkjalaust.
- Hellið fyllingunni í botninn og setjið tertuna svo inn í kæli til að stífna eða í 30 – 60 mínútur.
- Ef þið geymið tertuna í frysti er gott að taka hana út láta standa aðeins áður en þið gæðið ykkur á henni. Hún á að vera mjúk en ekki frosin.