Paleo próteinpönnukökur úr smiðju Ásdísar grasalæknis. „Ég hef verið að prófa mig áfram með ýmsar uppskriftir að glúteinlausum næringarríkum pönnukökum sem metta vel en þessar er einnig hægt að nota sem vöfflur. Ég reyni að gera tvo eða þrjá skammta í einu. Ég frysti svo hluta af þeim og skelli í brauðristina ef ég hef lítinn tíma. Þessar pönnslur eru prótenríkar, sykur, glútein og mjólkurlausar og henta því vel fyrir þá sem eru á sérfæði. Það er hægt að leika sér endalaust með álegg en mitt uppáhald er lífrænt hnetusmjör með sykurlausri bláberjasultu, banana eða fíkjusneiðum og dass af hampfræjum yfir. Svo er líka vinsælt á mínu heimili að nota sykurlaust súkkulaðiálegg jarðarber í sneiðum. Líka hægt að skella bara smjöri, osti og gúrku eða eplasneiðum. Einfalt og gott.“
Pönnukökur:
- 1/2 bolli möndlumjöl eða annað glútenlaust mjöl
- 1 msk möluð hörfræ eða möluð chia fræ
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/4-1/2 stappaður banani
- 3 msk möndlumjólk
- 3-5 dropar vanillustevía
- Smá sjávarsalt
- 1 tsk kanill
Aðferð:
- Hrærið öllu hráefninu saman með pískara í skál. Setjið kókosolíu á miðlungs heita pönnu eða vöfflujárn og bakið á báðum hliðum.
- Toppið með uppáhalds álegginu þínu og njótið.
Verði ykkur að góðu!