Krækiberjabökur

Krækiberjabökur sem Solla á Gló deildi með lesendum Náttúrulækningafélagsins. Hér er miðað við fjögur 10-12 sentimetra bökuform með lausum botni en allt eins má nota eitt venjulegt bökuform í stað fjögurra lítilla. Hneturnar þurfa að liggja í bleyti í tvær klukkustundir.

Botn:

  • 5 dl möndlur
  • 1 dl kakóduft
  • 2 dl döðlur, smátt saxaðar
  • 1 dl apríkósur
  • 1 tsk vanilla, duft eða dropar
  •  ⅛ tsk sjávarsalt

Aðferð:

  1. Allt sett í matvinnsluvél og maukað saman. Deigið er tilbúið þegar það klístrast saman.
  2. Skiptið deiginu í fernt. Notið fjögur 10-12 cm bökuform með lausum botni. Þrýstið niður í formin og setjið inn í frysti á meðan verið er að búa til marsipanið.
  3. Athugið að hægt er að nota eitt 23-26 cm bökuform í staðin fyrir fjögur lítil.

Vanillufylling:

  • 2 ¼ dl makadamíu eða kasjúhnetur, sem búnar eru að liggja í bleyti í 2 klst
  • ¾ dl agavesýróp eða önnur sæta
  • 2 msk kókosolía
  • 1 tsk vanilla
  • Salt af hnífsoddi

Aðferð:

  1. Allt sett í blandara eða matvinnsluvél og blandað saman þar til alveg silkimjúkt og kekklaust.
  2. Fyllingin sett yfir botninn.

Krækiberjatopping:

  • 4 dl krækiber
  • 2-3 msk hunang

Aðferð:

  1. Blandað saman og sett ofan á vanillufyllinguna.

Verði ykkur að góðu!

Related posts

Hunangsristaðar gulrætur

Tælensk núðlusúpa

Eplabollakökur með grískri jógúrt og möndlumjöli