Holl og gómsæt bláberjakaka

Bláberjakaka úr smiðju Gosia Madej. Í þessari hráköku eru bara náttúruleg innihaldsefni og enginn viðbættur sykur.

Kremin:

  • 180 g kasjúhnetur
  • 90 ml vatn
  • ½ fersk vanilla
  • Safi úr ½ límónu
  • 70 g hunang
  • 200 g fljótandi kókosolía
  • 80 g kókosflögur
  • 250 g frosin bláber
  • Sjávarsalt

Aðferð:

  1. Setjið hneturnar í blandara. Bætið vatni við og blandið sérstaklega vel. Bætið öðrum hráefnum við og blandið öllu vel saman.
  2. Skiptið kreminu upp í tvennt. Bætið bláberjum í annan helminginn og blandið vel. Hinn helmingur er óbreyttur.

Botninn:

  • 190 g möndlur
  • 50 g kókosflögur
  • 80 g döðlur
  • 2 msk vatn
  • 4 msk kókosolía
  • 2 msk hunang
  • Sjávarsalt

Aðferð:

  1. Setjið botninn neðst í það form sem þið viljið en mér finnst fallegt að bera þetta fram í múffuformum. Bætið ljósa kreminu við og frystið í 20 mínútur.
  2. Smyrjið bláberjakreminu á toppinn og skreytið með bláberjum og kókosflögum eða því sem hugurinn girnist.
  3. Setjið kökurnar aftur í frysti yfir nótt en takið þær út 20-30 mínútum áður en þær eru bornar fram.

Verði ykkur að góðu!

Related posts

Hunangsristaðar gulrætur

Tælensk núðlusúpa

Eplabollakökur með grískri jógúrt og möndlumjöli