Uppskrift af næringarríku og mjög bragðgóðu granóla. Það er stútfullt af trefjum, próteinum og góðum fitusýrum. Þetta er mjög lágt í kolvetnum og nýtist vel þeim sem eru að tileinka sér lágkolvetnafæði. Granólað er frábært sem morgunmatur með grískri jógúrt, berjum og rjóma um helgar.
Granóla:
- 250 g möndlur og/eða hnetur
- 240 ml vatn
- 70 g kókosflögur
- 140 g sólblómafræ
- 130 g hörfræ
- 55 g möndlumjöl
- 30 g graskersfræ
- 30 g sesamfræ
- 4 msk kókosolía
- 1 msk túrmerik
- 1 msk kanill
- 2 tsk vanilluextrakt
Aðferð
- Hitið ofninn í 150°C. Saxið möndlurnar/hneturnar í matvinnsluvél eða með beittum hníf.
- Blandið öllum innihaldsefnum saman í skál og breiðið út á bökunarpappír.
- Hitið blönduna í 20 mínútur í ofninum. Gætið vel að tímanum. Hnetur og fræ eru mjög viðkvæm fyrir hita og gæta ætti að því að þau brenni ekki.
- Takið út úr ofninum og hrærið í blöndunni og hitið í aðrar 20 mínútur.
- Slökkvið á ofninum og leyfið blöndunni að þorna enn frekar í ofninum, meðan hann kólnar.
Þessi uppskrift er fengin af https://www.dietdoctor.com/recipes/golden-low-carb-granola