Gulrótarsúpa með engifer

Gulrótarsúpa með engifer er fersk en einföld. Uppskriftin er passleg fyrir fjóra.

Gulrótarsúpa:

  • 8 stórar gulrætur
  • 3 avókadó
  • 5 bollar vatn
  • 3 tsk rifið engifer
  • Hálfur bolli ferskt kóríander
  • Sjávarsalt

Aðferð:

  1. Rífið gulræturnar og skerið avókadó og blandið í matvinnsluvél með engiferinu.
  2. Vatnið er soðið sér og blandað við grænmetismaukið. Kóríander stráð yfir.

Related posts

Tófú „besta“ próteinið – Uppskrift

Lax, kjúklingabaunir, harissa og feta

Egg & Kotasæla fyrir einn