Graskerssúpa með naan brauði

Hér er uppskrift af gómsætri graskerssúpu sem er úr smiðju eldhúss Heilsustofnunar NLFÍ. Þessi súpa er frábær með góðu naan brauði.

Graskerssúpa:

  • 2 msk jurtaolía
  • 1 laukur, saxaður
  • 2 hvítlauksgeirar, saxaðir
  • 300 g af skrældu graskeri, skorið í ca 3 cm bita
  • 100 g af skrældum karftöflum, saxaðar í bita
  • 600 ml af grænmetissoði
  • 1 dós kókosmjólk
  • 1 tsk cumminfræ
  • 2 tsk safi úr lime
  • Sjávarsalt og svartur pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Brúnið lauk, hvítlauk og cumminfræin í olíunni við meðalháan hta í nokkrar mínútur.
  2. Bætið við graskerinu, kartöflum, soði og kókosmjólk. Sjóðið þetta við vægan hita í um 20 mínútur, eða þar til grænmetið er orðið vel meyrt. Maukið þetta svo með töfrasprota eða í matvinnsluvél.
  3. Limesafa er bætt saman við og kryddað til. Gott að nota sýrðan rjóma með.

Naan brauð:

  • 1 kg heilhveiti
  • 1 lítri AB-mjólk
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 tsk matarsóti
  • Ögn af salti, pipar eða hvítlauk

Aðferð:

  1. Betra er að laga degið kvöldinu áður.
  2. Deigið er svo flatt úr, penslað með bræddu smjöri og kryddað með salti, pipar og jafnvel hvítlauk.
  3. Bakað í ofni við 200 gráður í 5-10 mínútur.

Related posts

Einfalt malasískt karrý

Silungur, smjörbaunir og límóna

Stökkt tófú með sesam, chili og lime