Græna þruman

Græna þruman á vel við stefnu Náttúrulækningafélagsins um grænan og heilbrigðan lífsstíl. Þessi drykkur er einungis 170 hitaeiningar.  Drykkurinn er mjög trefjaríkur og stútfullur af vítamínum. Má þar nefna A-vítamín (204% af RDS), fólasín (56% af RDS) og C-vítamín (106% af RDS). Einnig er þessi drykkur mjög ríkur af af steinefnunum magnesíum og kalíum, en þau koma m.a. að vöðvasamdrætti og nýtast vel í líkamsrækt og útiveru.

Græna þruman:

  • 100 g spínat
  • 100 g mangó
  • 20 g engifer
  • ½ banani
  • 50 ml kókosvatn
  • 200 ml vatn

Aðferð:

  1. Allt sett saman í blandara.

Verði ykkur að góðu!

Related posts

Hunangsristaðar gulrætur

Tælensk núðlusúpa

Eplabollakökur með grískri jógúrt og möndlumjöli