Vegan „Er það framtíðin?“ | Málþing í mars 2017

Fræðslunefnd Náttúrulækningafélags Íslands efndi til málþings á Icelandair Hótel Reykjavík Natura, þingsal 2, þriðjudaginn 21. mars 2017 kl. 19:30.

Þessum spurningum var velt upp á málþinginu:

  • Hver var fæða frummannsins?
  • Er vegan mataræði betra fyrir þarmana?
  • Þarf vegan matur að vera lífrænn?
  • Er nóg prótein í vegan mataræði?
  • Þarf að taka bætiefni með vegan mataræði?
  • Er vegan matur fyrir börn?

Myndbandsupptaka af öllu málþinginu
Fyrir hlé

Eftir hlé

Frummælendur:

  • Allir vegir liggja til vegan – Benjamín Sigurgeirsson, doktor í líftækni.  Hér má nálgast erindi Benjamíns á pdf-formi.
  • Er nauðsynlegt að deyða dýr? Bjarni Þór Þórarinsson, vegan og ráðgjafi.
  • Veganismi og íþróttir – Hulda B. Waage, kraftlyftingakona
  • Hvers vegan ekki? –  Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir, upplýsingafulltrúi Samtaka grænmetisæta á Íslandi. Hér má nálgast erindi Sæunnar á pdf-formi.

Fundarstjóri:
Margrét Grímsdóttir,  framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsustofnun NLFÍ

Auk frummælenda tók þátt í umræðum:
Meðganga og uppeldi ungra barna – Ragna Ingólfsdóttir, afrekskona í badminton  og Ólympíufari

Tæplega 100 manns sóttu þetta fróðlega málþing og þakkar fræðslunefnd NLFÍ öllum þátttakendum kærlega fyrir.
„berum ábyrgð á eigin heilsu“

Related posts

Vel heppnuð matþörungaferð

Matþörungaferð 21.september

Villtir matsveppir á Íslandi – Sveppamó