Ofureinföld linsusúpa

Þetta er súpan sem við elduðum oft í ferðalögum síðasta sumar og munum endurtaka leikinn þetta sumar! Þú þarft bara einn pott og hráefnið er þurrvara plús laukur og sítróna sem þarf ekki að vera í kæli, fullkomið til að taka með í langferðalagið og elda á prímusnum. Bónusinn er svo hvað hún er mettandi og næringarþétt. Börnin mín og maðurinn minn ELSKA hana! Stundum höfum við haft hrísgrjón með henni sem hefur verið algjör hittari hjá krökkunum. Hún er ekki bara einföld og fljótleg heldur líka ofboðslega góð.

Þú þarft:

  • 1 msk ólífuolía
  • 1 tsk cumin fræ
  • 1 lárviðarlauf
  • 1 laukur
  • 1 msk jurtakraftur/grænmetiskraftur (gerlausan)
  • 2 dl rauðar lífrænar linsur
  • 500 ml vatn (tips geyma smá til að ná öllu úr tómatflöskunni)
  • 1 flaska af lífrænni tómat passata, 425 gr.
  • 1 dós lífræn kókosmjólk
  • 2 tsk karrý
  • safi úr 1/2 sítrónu
  • ca 1/2 tsk jurtasalt (eða eftir smekk)

Aðferð:

  1. Byrjið á að hita ólífuolíuna og setja svo cuminfræin útí og leyfið að hitna í smá stund.
  2. Bætið smátt skornum lauknum útí ásamt lárviðarlaufinu og jurtakrafti. Steikið þar til laukurinn er orðinn mjúkur, bætið pínu vatni útí pottinn ef laukurinn fer að brenna við.
  3. Nú má bæta linsum, vatni, tómat passata, kókosmjólkinni og karrý útí og leyfið að malla þar til linsurnar eru orðnar mjúkar.
  4. Kreystið sítrónu útí fyrir ferskleik sem er algjört lykilatriði að mínu mati. Smakkið til og saltið eftir smekk.

Verði ykkur að góðu.

Related posts

Bleik október hugleiðing

Sæt dressing með kóríander og myntu

Náttúrulegur og nærandi hlaupadrykkur