Hér eru uppskriftir af hollustustykkjum sem þú getur gert heima og eru þau margfalt hollari en mikið af þeim „hollustu“stykkjum sem fást í matvörubúðum.
Hnetusmjörsstykki
Uppskrift 7 döðlur 5 tsk heitt vatn 130 g hnetusmjör, ósætt 3 msk sýróp 1 tsk vanilludropar 300 g tröllahafrar 2 tsk chiafræ 2 tsk hörfræ
Aðferð:
Setjið döðlurnar í heitt vatnið í um 10 mínútur og svo í blandara.
Þessu er blandað við hnetusmjör, sýróp og vanillu og hitað á pönnu þar til það er vel blandað saman.
Því næst er tröllahöfrum, chiafræjum og hörfræjum bætt við hnetusmjörsblönduna í stóra skál.
Breyddu úr blöndunni á plötu með bökunarpakkír og þrýstu létt niður. Blandan er því næst látin vera í frysti í minnst tvær klukkkustundir.
Skerðu svo í stykki í þeim stærðum sem henta þér og geymdu í frysti.
Bananabrauðsstykki
Uppskrift
320 g tröllahafragrautur 2 msk hörfræ 1 tsk kanill ½ tsk salt 2 bananar, vel þroskaðir 4 msk hunang 1 tsk. vanilludropar 12 g döðlur, saxaðar
Aðferð:
Hitið ofninn í 180 gráður
Blandið hafragraut, hörfræjum, kanil og salti í stóra skál. Bætið við banönum, hunangi og vanilludropum og blandið vel saman. Bætið síðan döðlunum við.
Setjið á ofnplötu með bökunarpappír. Bakað í 20-30 mínútur eða þar til bitinn er orðinn brúleitur.
Kælið og skerið í hentuga bita.
Granólastykki
Uppskrift
160 g tröllahafragrautur 40 g Kellogg´s kornflögur 2 msk chiafræ 2 msk hörfræ 35 g graskersfræ 25 g möndlur, saxaðar 60 g möndlusmjör 120 g hunang 2 msk dökkt súkkulaði í bitum
Aðferð:
Blandið hafragraut, kornflögum, fræjum, súkkulaði og möndlum í skál.
Hitið hunang og möndlusmjör í 45 sekúndur í örbylgjuofni og hellið yfir blönduna í skálinni.
Blandið vel saman og setjið á plötu með bökunarpappír og þrýstið létt niður.
Þetta er svo sett í frysti í 30 mínútur. Skerið síðan í hentuga bita.
1 Ummæli
Mjög áhugasöm
Comments are closed.
Add Comment