Uppskriftavefur NLFÍ á Matarvef Mbl

Á Matarvef Morgunblaðsins er ítarleg umfjöllun um uppskriftir á vef Náttúrulækningafélagsins nlfi.is. Fjallað er um Matstofu Jónasar á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði, uppskriftavef Náttúrulækningafélagsins og birt uppskrift Halldórs Steinssonar yfirmatreiðslumeistara á Heilsustofnun að Spínatlasanja með valhnetupestó. Umfjöllun mbl og viðtal við Pálma Jónasson skrifstofustjóra og ritstjóra Náttúrulækningafélagsins má sjá hér.

„Á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði hefur mataræði verið hornsteinn starfseminnar frá upphafi. Þar er lögð áhersla á næringarríka fæðu úr jurtaríkinu og matseld frá grunni. Hér deilir Pálmi Jónsson einni vinsælustu uppskrift eldhússins grænkáls- og spínatlasanja með valhnetupestói,“ eins og segir í umfjöllun Morgunblaðsins.

Jónas Krisjánsson læknir í Hveragerði árið 1955 þegar Heilsustofnunin var stofnuð.

„Náttúrulækningafélagið hefur verið að setja aukinn kraft í vef félagsins nlfi.is. Þar er mikið af heilsutengdum fréttum og mikið safn uppskrifta. Ég hef að undanförnu verið að bæta við eigin uppskriftum og uppfæra eldri uppskriftir. Þar eru margar uppskriftir eftir Halldór Steinsson, yfirmatreiðslumann hjá Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði, en einnig eftir Geir Gunnar Markússon, næringarfræðing Heilsustofnunar, og marga fleiri. Samhliða hef ég sett þessar uppskriftir á Facebook-síðu samtakanna þar sem þetta hefur fengið mjög jákvæð viðbrögð,“ segir Pálmi Jónsson, skrifstofustjóri Náttúrulækningafélags Íslands og ritstjóri NLFÍ, sem hefur frá unga aldri starfað sem fréttamaður og rithöfundur. Eftir hann liggja fimm bækur. Nýjasta bók hans er „Að deyja frá betri heimi – Ævisaga Jónasar Kristjánssonar læknis.“

Pálmi er langafabarn Jónasar sem var guðfaðir Náttúrulækningafélagsins og Heilsustofnunar í Hveragerði.

„Matstofa Jónasar á Heilstofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði er opin alla daga vikunnar og er vinsælt að koma í hádeginu og fá sér hollan og góðan hádegisverð gegn vægu verði. Á hlaðborði er boðið upp á rétt dagsins og meðlæti og einnig er glæsilegur salatbar og súpa dagsins. Heilsute og fjallagrasate er einnig innifalið. Ekkert kjötmeti er á boðstólum en fiskur er framreiddur tvisvar í viku. Á kvöldin er léttari útgáfa af hádegisverði og þá er verð enn lægra,“ segir hann aðspurður um aðgengi almennings að gómsæta matnum í Hveragerði. 

Hvaða áhersla er lögð varðandi næringu og mataræði á Heilsustofnuninni?

„Mataræðið er einn af hornsteinum meðferðarinnar á Heilsustofnun og hefur verið frá því að Heilsustofnun var stofnuð árið 1955. Mikil áhersla er lögð á náttúrulega og næringarríka fæðu úr jurtaríkinu eins og til dæmis grænmeti, baunir, linsur, heilkorn, og ávexti. Fæðið inniheldur einnig fisk, egg og mjólkurvörur. Kjöt er ekki á matseðlinum en boðið er upp á fiskrétt tvisvar í viku. Boðið er upp á te í úrvali en te hússins er gert úr íslenskum jurtum sem tíndar eru af starfsmönnum stofnunarinnar í íslenskri náttúru. Stefnan í mataræðinu er að hafa sem minnst af unnum matvælum og leitast við að nýta innlenda framleiðslu. Við veljum okkar hráefni mjög vandlega og allur matur er eldaður frá grunni á staðnum. Hluti af grænmetinu og öðrum matjurtum sem boðið er upp á er lífrænt ræktað í eigin gróðurhúsum,“ segir hann. 

Eru bein tengsl á milli heilbrigðis og fæðu?

„Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hve næringin skiptir miklu fyrir almennt heilbrigði okkar. Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur Heilsustofnunar, segir að það séu mjög sterk tengsl milli neyslu næringarsnauðs matar og lífsstílssjúkdómanna en við notum 80% af útgjöldum heilbrigðiskerfisins í meðhöndlum á þeim sjúkdomum. Þessi næringarsnauði matur er oft kallaður gjörunninn matur og má þar nefna t.d. skyndibita, sætindi, kruðerí, unnar kjötvörur, gos- og orkudrykki.

Nýlegar rannsóknir hafa sýnt að mikil neysla þessara matvæla auki líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki, geðröskunum og ótímabærum dauðsföllum. Á Heilsustofnun fá dvalargestir virkilega að upplifa hversu mikil lífsgæðaaukning er fólgin í því að borða heilnæma fæðu,“ segir Pálmi. 

Ertu til í að deila með okkur góðri uppskrift í ykkar anda?

„Á vefnum nlfi.is er mikið safn uppskrifta og þá ekki síst eftir Halldór Steinsson, matreiðslumeistarann á Matstofu Jónasar á Heilsustofnun í Hveragerði. Spínatlasanja með valhnetupestó hefur notið mikilla vinsælda í Hveragerði og á uppskriftavefnum okkar. Mig langar að deila henni með ykkur hér.

Related posts

Opið hús í Hveragerði á laugardag

Áföll á lífsleiðinni

Sjálfbærnivottaðar íbúðir í Hveragerði