Tryggja verður réttlæti og jafnræði

Landsþing NLFÍ skorar á stjórnvöld að standa vörð um það mikilvæga endurhæfingarstarf sem fram fer á Heilsustofnun í Hveragerði. Tryggja verði réttlæti og jafnræði við úthlutun fjármuna til endurhæfingarmála á Íslandi, þannig að það mikilvæga endurhæfingarstarf sem fram fer hjá Heilsustofnun beri ekki áfram skarðan hlut frá borði, eins og verið hefur mörg undanfarin ár. Áskorun þessa efnis var samþykkt einróma á 40. Landsþingi Náttúrulækningafélags Íslands laugardaginn 20. september 2025.

Áskorun til stjórnvalda

„40. Landsþing Náttúrulækningafélags Íslands haldið í Reykjavík, 20. september 2025 samþykkir að skora á stjórnvöld að standa vörð um það mikilvæga endurhæfingarstarf sem fram fer hjá Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.  Tryggja verði réttlæti og jafnræði við úthlutun fjármuna til endurhæfingarmála á Íslandi, þannig að það mikilvæga endurhæfingarstarf sem fram fer hjá Heilsustofnun beri ekki áfram skarðan hlut frá borði, eins og verið hefur mörg undanfarin ár.“

Related posts

Pasta með ólífum, kapers og harissa

Gjörunnin matvæli og lífsstílssjúkdómar

„Grét í koddann eða fékk sér rauðvínsglas“