Hugað að heilsunni um jólin

Nú eru jólin á næsta leyti með öllu óhófinu í jólaboðum, jólahlaðborðum, áfengisdrykkju, smákökuáti og hreyfingarleysi. En þetta þarf ekki að vera svona og við getum gert margt til að koma í veg fyrir að við þyngjumst yfir jólin . Það er vel hægt að njóta jólanna alveg í botn þó maður gangi ekki fram af sér í mat, drykk og hreyfingarleysi.
Jól og áramót er rúmlega vika en undirbúningurinn er oft margir mánuðir og margir eru byrjaðir að huga að jólnum í október. Því er um að gera að vera meðvitaður um heilsu sína á þessum tíma því allar búðir og umhverfi okkar eru löðrandi í jólakræsingum s.s. jólaöli og konfekti. Gott máltæki segir „Það skiptir ekki máli hvað við borðum milli jóla og nýárs, heldur milli nýrárs og jóla“ ,þ.e.a.s. allar hinar 51 vikuna. En  þegar verslunarmenn  eru farnir að draga jólaundirbúninginn mörgum mánuðum fyrir jól þá skiptir mjög miklu máli að vera meðvitaður um heilsu sína á þessum tíma.
Hér eru nokkrar góðar heilsureglur og leiðbeiningar til að hafa í heiðri í jólaundirbúningum og yfir jólahátíðana. Ef þeim er fylgt þá munið þið ekki bara koma heilsusamlegri útúr jólnum heldur verða jólin mun skemmtilegri.

Góðar reglur að heilsusamlegri jólahátíð:

Skerum niður ávexti og notum það í stað óhófs í sætindum
Það er mikið úrval af góðum ávöxtum um jólin eins og t.d. safaríkum mandarínum og eplum. Ávextir eru nammi náttúrunnar en innihalda bara 10% sykur en ekki 100% eins og viðbættur sykur er. Auk þess eru ávextir stútfullir af vítamínum, steinefnum og trefjum. Leyfum börnunum á heimilinu að skera niður ávextina og þess vegna að búa til skemmtilegar fígúrúr þeim.

Borðum í meðvitund
Það er endalaust mikið af góðu sjónvarps og afþreyingarefni í boði um jólin. Gætið að því að borða ekki mikið fyrir framan sjónvarp, tölvu, í bílnum eða annars staðar þar sem þú ert að gera allt annað en að einbeita þér að því að borða. Meðvitundarlaust át veldur því að maður borðar mjög mikið og oft mjög sykurmiklar matvörur.

Borðum næringarríkan morgunverð – ALLA daga!
Þó að það séu jólin er mikilvægt að næra sig vel á  á mikilvægustu máltíð dagsins sem er morgunmaturinn. Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem borða morgunmat, borða síður óhollustu eins og sykurmiklar matvörur er líður á daginn og eru frekar í kjörþyngd.

Tyggjum matinn og njótum hans
Á jólunum erum við að borða einn allra bragðbesta mat sem við getum borðað. Því er um að gera að njóta matarins líka og tyggja vel (a.m.k. 15-20 sinnum). Ekki bara „gúffa“ í sig fullum disk af öllum kræsingunum á nokkrum mínutum og liggja svo á meltunni eftir það upp i sófa.

Búum til eigið jólakonfekt
Það er mjög margir góðir kostir við það búa til eigið konfekt. Oft er heimagert konfekt mun heilsusamlegra en fjöldframleitt erlent Macintosh t.d. fer minna af aukaefnum í eigið konfekt og við getum notað meira af dökku súkkulaði (+70%)  sem er stútfullt af andoxunarefnum. Enn einn góður kostur við heimagert jólakonfekt er að við lögðum mikla vinnu og natni í því og förum því oft sparlega í að neyta þess.

Nærðu sálina – munum að brosa og gleðjast. Það er jólakonfekt sálarinnar
Mataræði okkar stjórnast mikið af stjórnstöðinni/hausnum. Ef að við erum hamingjusöm, með sjálfstraustið í lagi og okkur líður vel eru minni líkur á því að við borðum yfir okkar á jólahátíðinni. Í stað þess að drekkja sér í sætindum og góðgæti ætti maður að horfa á góða grínmynd og/eða hitta skemmtilegt fólk sem fær mann til að skellihlægja. Einnig er góð regla að heilsa fólki á förnum vegi með brosi, það kostar ekkert og getur verið sælgæti fyrir sál þína og þess sem tekur á móti því.

Sleppum sætuefnum og borðum frekar heiðarlegan sykur hóflega
Það er komið alltof mikið úrval af sætuefnum og við erum að troða sætuefnum í mikið af vörum sem við kaupum og bökum. Þessi neysla sætuefna er orðin óhófleg eins og sykurneyslan hjá mörgum. Í stað þess að baka 10 sortir af „hollari“ smákökum og neyta þeirra á hverjum degi í jólamánuðnum, neyttu frekar heiðarlegar dísætrar ömmmuköku sjaldnar.

Gefðu upplifanir og betri heilsu
Í stað þess að gefa dauða hluti sem fólk á allt of mikið af er góð hugmynd að gefa t.d.miða á tónleika, jóganámskeið, núvitundarnámskeið eða dvöl á heilsuhóteli.

Moka snjó í okkar nærumhverfi
Í kringum jólin er jörðin oft þakin snjó og því um að gera að vígbúast góðri skóflu og moka snjóinn eins og enginn sé morgundagurinn. Jólin er kærleikshátíð og um að gera að láta góðverkin tala og mokum líka tröppur og innkeyrslu nágrannans, sérstaklega ef þið teljið að heilsa eða aldur leyfi það ekki. Setjum líka skófuna í bílinn og mokum bíla sem festast eða  mokum bílaplanið í vinnunni.
Það besta úr öllum þessum mokstri er að þetta er frábær líkamsrækt sem reynir á flesta vöðva líkamans.

Út að leika með börnunum eða okkur sjálfum– Finndu barnið í þér
Oft þegar við eldumst gleymum við  hinu lífsglaða, áhyggjulausa og káta barninu í okkur. Það er um að gera að nýta jólafríið í að leika sér einn eða með börnum sínum, barnabörnum og frændsystkinum. Skelltu þér í kuldagallann eða regngallann og farðu í snjókast, eltingarleik, renndu þér á snjóþotu, búðu til snjókall, farðu í leiki og slökktu á þessum fullorðna einstakling sem þú telur þig vera. “Við erum bara eins gömul og okkur líður”.
Á jólum er öll fjölskyldan oft saman komin og er það nú ekki oft sem tími gefst til að öll fjölskyldan hreyfi sig saman. Að loknu miklu matarboði er fátt betra fyrir sál og líkama að fara út með allri fjölskyldu á skíði, í göngutúr, fjallgöngu eða hvað sem ykkur í dettur í hug. Látum veðráttuna á  Íslandi ekki stoppa okkur að njóta samvista með fjölskyldunni. Klæðum okkur eftir verði og brosum bara enn breiðar því verra sem veðrið er, eins og máltækið segir „Það er ekki til vont veður bara illa klæddur maður“.

Eigið gleðileg og heilsusamleg jól, kæru landsmenn. Munið slagorð NLFÍ þó það séu jól, „berum ábyrgð á eigin heilsu

Related posts

Bleik október hugleiðing

Snyrtivörur og aðrar eitraðar vörur í umhverfi okkar

Forvarnir okkar eru að falla – Fljótum sofandi að feigðarósi

1 Ummæli

Janus Guðlaugsson 21. desember, 2019 - 09:00

Vel að orði komist Geir Gunnar!

Comments are closed.

Add Comment