Fimm hollar og fituríkar matvörur

Það er ekki langt síðan að fita var helsti óvinur okkar  í mataræðinu og mikið af fitusnauðum vörum markaðssett. Oftar en ekki var bætt í  þær sykri til að bæta upp fituskerðinguna..
Sem betur fer hefur orðið   vakning  hvað varðar óhollustu viðbætts sykurs í matvælum og við vitum að fita er okkur nauðsynleg fyrir eðilega starfssemi frumanna í líkamanum m.a. hjarta- og æðakerfis, húðar, augna og hormónakerfis. Auk þess fáum við  fituleysanleg vítamín úr fitu í fæðunni.

Hafa verður í huga að fita er mjög orkurík eða 9 hitaeiningar (kkal) í hverju grammi (4 kkal/g í kolvetnum og próteinum), því verður að gæta þess að neyta ekki of mikils af henni til að fitna ekki, sérlega ef fólk hreyfir sig lítið.

Hér fyrir neðan eru fimm matvörur sem eru virkilega góður kostur ef maður vill njóta næringar- og fituríkra matvara:

Hörfræ
Hörfræ eru mjög trefjarík, rík af omega -3 fitusýrum og innihalda nauðsynleg andoxunarefni.  Auk þess innihalda þau B-vítamín, kalíum, magnesíum og sink. Til þess að líkaminn geti nýtt næringuna úr hörfræjum er best að mylja þau eða láta þau liggja í bleyti áður en þeirra er neytt.
Frábært er að neyta hörfræja með morgunmatnum s.s. út  á hafragrautinn eða í AB-mjólkina, í brauðið eða sem snakk.

Lýsi
Helstu ástæður þess að lýsi er svo næringarríkt eru þær að það inniheldur þónokkuð magn af omega -3 fitusýrunum DHA og EPA, sem m.a. hafa sýnt sig vera verndandi gagnvart hjarta- og æðasjúkdómum, hindra bólgur og vinna gegna Alzheimers sjúkdómnum.
Auk þess er lýsi mjög auðugt af D-vítamíni sem er nauðsynlegt fyrir eðlilega hormónastarfssemi og beinvöxt.
Hér á Íslandi er lýsi eða annar D-vítamíngjafi mjög mikilvægur þar sem við fáum lítið af D-vítamíni frá sólu.

Hampfræ eða  olía
Hampfræ eða olía er með öllum nauðsynlegu amínósýrunum og  er rík af omega-3 og  omega- 6 fitusýrum. Hlutfallið af omega-3 og -6 í hampfræolíu er 1:3 og er það hlutfall talið hvað  ákjósanlegast fyrir  heilbrigðan líkama.
Hampfræolía inniheldur um 20 sinnum meira af omega -3 fitusýrum en ólífuolía. Ein teskeið af hampfræolíu  inniheldur um 94% af ráðlögðum dagsskammti af omega-3 fitusýrum.

Lárpera (avókadó)
Avókadó er ein af fáum plöntuafurðum  sem innihalda fitu og  er það ríkt af einómettuðum fitusýrum. Það eru um 22 g af fitu í meðalstóru avókadó. Auk þess er það mjög næringarríkt m.a. af trefjum, kalíum, E-vítamíni og B-vítamínum.
Avókadó er með mjög þykkt hýði og er því mjög öruggur ávöxtur því skordýr eða eitur nær sjaldan að aldinkjötinu.

Valhnetur
Valhnetur eru ekki einungis mjög bragðgóðar heldur einnig einstaklega ríkar af omega-3 fitusýrum.  Auk þess eru valhnetur próteinríkar og innihalda þónokkuð magn af E-vítamíni.
Frábært er að nota valhnetur sem snakk yfir daginn þegar hugrið sækir að. Þó verður að gæta að því að skammta sér þær t.d. 5-10 stykki, því þæru eru mjög orkuríkar. Einnig er gott að nota valhnetur í salöt eða bakstur.

 

Skrifað af Geir Gunnari Markússyni ritstjóra NLFÍ, ritstjori@nlfi.is

Related posts

Bleik október hugleiðing

Snyrtivörur og aðrar eitraðar vörur í umhverfi okkar

Forvarnir okkar eru að falla – Fljótum sofandi að feigðarósi

2 Ummæli

Björg Blöndal 14. apríl, 2018 - 16:21

Eru omega3 vörur allar við sama borð? Meina td var lýsi ekki töluvert betra/ virkara hér áður?

Geir Gunnar Markússon 27. apríl, 2018 - 09:37

Það eru góðar omega 3 fitusýrur í lýsi en við þekkjum ekki hvort lýsi hafi verið virkara áður. Þú verður að leita til Lýsi ehf. með það.

Comments are closed.

Add Comment