Dvalargestir á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands sækja bæði einkatíma hjá sérfræðingum og hóptíma. Fjöldi einkatíma er að jafnaði 6,34 klukkustundir en hóptímar eru 17,8 í hverri viku. Eins og sjá má á meðfylgjandi grafi eru tímarnir nokkuð færri á öldrunarlínu en þar ráða menn almennt ekki við fullt álag. Það sama á við um hluta af dvalargestum á tauga-, bæklunar-, krabbameins- og efnaskiptalínum.
Breyting á aðbúnaði og langar göngur innanhúss hafa veruleg áhrif. Eins og margir þekkja eru langir gangar á Heilsustofnun í Hveragerði og dvalargestir þurfa að ganga mikið til að komast á milli meðferða og í matsal. Gestir ganga þannig aukalega að lágmarki 38-50 mínútur á hverjum degi sem bætir verulega við hreyfingu dvalargesta.