Heildræn nálgun til heilbrigðis. Náttúrulækningafélag Íslands efndi til málþings í Hvammi, Grand Hótel, föstudaginn 12. október 2012 kl. 13:00 – 17:00.
– Er blanda af hefðbundinni meðferð og viðbótarmeðferð viðurkennd?
– Er hugur og líkami órjúfanleg heild?
– Tölum við um sjúkdóma fremur en heilbrigði?
– Að leita jafnvægis – er það leið til heilbrigðis?
– Geta tilfinningar valdið sjúkdómum?
– Hvaða úrræði eru í boði?
Frummælendur:
– Hólmfríður Margrét Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur M.Sc. Að meðhöndla hið stóra í gegnum hið smáa.
– Arnbjörg K. Konráðsdóttir, kundalini jógakennari, jógískur ráðgjafi, bowentæknir og heilari. Hugleiðsla og jógaiðkun til lífs í jafnvægi.
– Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir, Dip.phyt. Lic.ac Viðbrögð líkamanns við tilfinningalegu áreiti.
– Anna Ottesen, sjúkraþjálfari B.Sc. Heilsan í öngstræti – hvað er til ráða?
– Sveinn Guðmundsson, doktorsnemi í mannfræði við Háskóla Íslands. Læknar, hjúkrunarfræðingar og heildræn heilsa.
– Bridget Ýr McEvoy, verkefnisstjóri í hjúkrun á Heilsustofnun NLFÍ Gjörhygli og slökun.
– Fundarstjóri: Haraldur Erlendsson yfirlæknir á Heilsustofnun NLFÍ.
Fyrirspurnir og pallborðsumræður að loknum framsöguerindum – Hollar veitingar í hléi