Hamskipti/Breytingaskeiðið – Nýtt námskeið

Sex daga námskeið frá sunnudegi til laugardags á Heilsustofnun í Hveragerði. 17-23.febrúar.
Þetta námskeið er fyrir konur sem vilja auka þekkingu sína á þessu æviskeiði.

Tækifæri til umbreytinga.
Hvernig bregst líkaminn við?
Getur andleg líðan breyst?
Hormónalyf eða ekki?
Skiptir mataræði og hreyfing máli?

Á námskeiðinu gefst þátttakendum tækifæri til að kynnast leiðum til að takast á við möguleg einkenni breytingaskeiðs.
Á námskeiðinu tvinnast saman áhugaverð fræðsla og reynslusögur og þátttakendur kynnast ýmsum tækifærum sem felast í því að fara í gegnum þetta spennandi tímabil og verða sterkari í seinni hálfeik.
Hressandi og fróðleg dagskrá, áhersla lögð á gleðina í lífinu, hugað að mataræði, hreyfingu og slökun.

Innifalið:
Gisting, ljúffengur og hollur matur, fræðsla og hóptímar, núvitund, jóga og göngur, leikfimi eða vatnsþrek, aðgangur að baðhúsi, sundlaugum og líkamsræktarsal.
Bókin, Sterkari í seinni hálfleik, fylgir með námskeiðinu.

Umsjón:
Árelía Eydís Guðmundsdóttir – dósent í leiðtogafræðum
Benedikt Ó. Sveinsson – kvensjúkdómalæknir
Margrét Grímsdóttir – hjúkrunarfræðingur
Geir Gunnar Markússon – næringarfræðingur
Þóra Sif Sigurðardóttir – íþróttafræðingur

Verð: 165.000 kr.
20% afsláttur fyrir félagsmenn NLFR og NLFA.

Related posts

Vel heppnuð matþörungaferð

Matþörungaferð 21.september

Vel heppnað kryddjurtanámskeið