Grænkálspestó frá Gurrý

Gurrý garðyrkjufræðingi er margt til lista lagt, hún skrifar reglulega pistla á síðuna og hér deilir hún með okkur dásamlegri uppskrift að grænkálspestó.

Uppskrift
– 3-4 góðar greinar af grænkáli
– Vænn vöndur af steinselju
– 3-4 hvítlauksrif
– 1 poki furuhnetur
– Góður biti af parmesan osti
– Matarolía eftir þörfum
– Salt og pipar

Aðferð
Allt sett í matvinnsluvél og maukað saman, kryddað með salti og pipar eftir smekk þar til æskilegu bragði er náð. Dásamlega gott á saltkex eða gott brauð.

Related posts

Sumar- og nagladekk

Bleik október hugleiðing

Sæt dressing með kóríander og myntu