Gómsætt grænmetissalsa frá Gurrý

Gómsæta grænmetissalsað, sem nú er orðið fastagestur á veisluborðum heima hjá mér, er sérlega ljúffengt og auðvelt í framkvæmd.  Það eina sem þarf til verksins er gott skurðarbretti, beittur  grænmetishnífur, hvítlaukspressa og skál undir salsað.

  • 1 rauðlaukur, fínt saxaður (má líka alveg nota venjulegan gulan matlauk)
  • 1-2 hvítlauksrif, kramin (má sleppa)
  • 1 rauð íslensk paprika, fínt söxuð
  • 1 gul íslensk paprika, fínt söxuð
  • 2-3 hárauðir íslenskir tómatar, fínt saxaðir
  • 1 meðalstór íslensk gúrka, fínt söxuð
  • Íslensk sjávarsalt eftir smekk
  • Ferskar íslenskar kryddjurtir að eigin vali (til dæmis timian, rósmarín, kóríander, steinselja)
  • Góð ólífuolía (einhverjir myndu kannski frekar vilja repjuolíu úr íslensku byggi…)

Grænmetinu blandað saman í fallegri skál, salti og kryddjurtum stráð yfir, smá skvettu af góðri olíu hellt yfir, öllu hrært saman og borið fram með öllum hugsanlegum mat.  Einnig er tilvalið að setja út í salsað margs konar hnetur eða fræ, mangó eða aðra ávexti, þetta er í raun einungis leiðbeinandi uppskrift.

Guðríður Helgadóttir, grænmetissalsaáhugamanneskja

Related posts

Bleik október hugleiðing

Sæt dressing með kóríander og myntu

Náttúrulegur og nærandi hlaupadrykkur