Berjabaka

Solla á Gló heldur úti matarblogginu www.maedgurnar.is með dóttur sinni og veittist okkur hjá NLFÍ sá heiður að birta uppskriftir af berjaköku af vef þeirra. Við þökkum þeim mæðgum kærlega fyrir.
Á þessum árstíma, á mörkum hausts og síðsumars, finnst okkur mæðgum voða notarlegt að baka ilmandi berjaböku. Við búum svo vel að eiga nóg af bláberjum eftir berjamó sumarsins. Annars er hægt að kaupa íslensk bláber í búðunum núna og frosin villibláber hvenær sem er ársins. 

Botninn
100g spelt
140g haframjöl
80g möndlur eða heslihnetur, malaðar
90g kókospálmasykur
1 tsk kanill
1 tsk sjávarsalt
120 ml kókosolía

Fyllingin
100g bláberjasulta (eða meira ef þarf)
120g bláber, t.d. frosin

Aðferðin
1. Setjið þurrefnin í skál og blandið.
2. Bætið kókosolíunni út í og hnoðið þar til deigið klístrast saman.
3. Notið 1/4 af deiginu í hjörtun (setjið deigið milli tveggja bökunarpappírsblaða og rúllið deigið út með kökukefli, notið piparkökumót til að skera út hjörtu eða falleg mynstur).
4. Geymið hjörtun í kæli.
5. Þrýstið nú restinni af deiginu (3/4) í botninn á 23 cm kökuformi.
6. Smyrjið sultu á botninn.
7. Hellið bláberjum yfir sultuna.
8. Leggið hjörtun nú yfir (eða myljið deig yfir).
9. Bakið við 190°C í 20 – 25 mínútur.
10. Gott er að leyfa pæjunni að kólna aðeins og stífna áður en þið njótið hennar með þeyttum kókosrjóma.

Kókosrjómi
Geymið dós af kókosmjólk inn í ísskáp. Feitari parturinn stífnar og skilst frá þynnri vökvanum. Takið feita hlutann (geymið restina til að nota í matreiðslu eða í smoothie) og hrærið aðeins upp áður en hann er settur í rjómasprautu með gashylki. 

Related posts

Bleik október hugleiðing

Sæt dressing með kóríander og myntu

Náttúrulegur og nærandi hlaupadrykkur