Ávaxtasalat

Uppskrift:
4 græn epli
4 bananar
eða  ferskir ávextir að eigin vali
100 gr. dökkt súkkulaði
heslihnetur hakkaðar
1 dl sýrður rjómi
1 peli rjómi

Meðhöndlun:
Skrællið eplin og skerið í bita. Sneiðið bananana, setjið í skál og blandið ávöxtum, brytjuðu súkkulaði og hökkuðum hnetunum saman við. Þeytið rjómann og blandið honum ásamt sýrðum rjómanum, varlega saman við ávextina. Kælið

Related posts

Bleik október hugleiðing

Sæt dressing með kóríander og myntu

Náttúrulegur og nærandi hlaupadrykkur