Heilsustofnun NLFÍ tekur þátt í WOW cyclothon

Tíu vaskir starfsmenn Heilsustofnunar NLFÍ munu taka þátt í hjólreiðakeppninni WOW cyclothon dagana 23-26. júní n.k. Í þessari hjólreiðakeppni er hjólað hringinn í kringum Ísland og áheitum safnað um leið til styrktar góðu málefni.

Heilsustofnun NLFÍ vill með þátttöku sinni minna alla landsmenn á slagorð sitt „berum ábyrgð á eigin heilsu“ og hvetja almenning til að huga að reglulegri hreyfingu. Auk þess hvetjum við alla landsmenn að fylgjast með keppninni og styðja góðgerðarmál í leiðinni.

Hægt er að kynna sér nánar WOW cyclothon hjólreiðakeppnina á www.wowcyclothon.is

Related posts

Nýr pistlahöfundur

Gleðilegt nýtt ár

Ályktanir 39. landsþings Náttúrulækningafélags Íslands