Sykur er mesti skaðvaldurinn í fæðunni

Náttúrulækningafélag Íslands hefur lengi haldið fram skaðsemi viðbætta sykursins. Alltaf eru að koma fram betri sannanir fyrir skaðsemi sykursins. Er nú svo komið að stór hluti þeirra matvara sem við neytum er uppfullur af sykri.
Nýlega kom út bókin „Fat change“ eftir prófessor Robert Lustig en hann heldur því fram að sykur sé hinn mesti skaðvaldur í fæði okkar. Hann gengur mjög hart fram um ógnina sem okkur stafar af mikilli sykurneyslu. Bók hans fjallar um hinn falda sannleik um sykur, offitu og lífsstílssjúkdóma.

Hér má nálgast umfjöllum um þessa bók:
http://ruv.is/heilbrigdismal/sykur-jafn-mikil-heilbrigdisogn-og-tobak

Hægt er að kynna sér frekar störf og fræði Roberts Lustig hér:
https://www.youtube.com/watch?v=dBnniua6-oM

Í þessu samhengi er líka vert að benda á heimildarmyndin Fed Up! sem kom út nýlega og fjallar um sama málefni og Robert Lusting er að benda á. En þessi mynd ætti að vera skylduáhorf fyrir öll okkar sem lifum í sykursætum og heilsuspillandi heimi.
http://fedupmovie.com/#/page/home

 

Related posts

Bleik október hugleiðing

Snyrtivörur og aðrar eitraðar vörur í umhverfi okkar

Forvarnir okkar eru að falla – Fljótum sofandi að feigðarósi