Hvað hefur áhrif á D-vítamínbúskap okkar?

Paseo de fin de semana

Það er ýmislegt sem hefur áhrif á D-vítamínbúskap okkar. Líkaminn framleiðir D-vítamín þegar sólarljós skín á húðina. Við fáum einnig D-vítamínið í matnum (þó í litlu magni og oftast sem viðbót) og einnig sem fæðubótarefni.

Það er ekki bara fæðan og sólarljósið sem hafa áhrif á D-vítamínbúskap okkar því það er margt annað í okkar umhverfi sem hefur áhrif. Má þar nefna:

  1. Hvar þú býrð á Jarðarkringlunni. Því fjær sem þú býrð miðbaug, því minna D-vítamín færðu frá sólinni.Við Íslendingar fáum mjög lítið af D-vítamíni stærstan hluta ársins, vegna sólarleysisins hér og inntaka D-vítamíns því nauðsynleg svo við náum upp eðlilegum D-vítamínbúskap. Þeir Íslendingar sem ferðast reglulega til sólarlanda á veturna fá reyndar sinn skammt af D-vítamíni á meðan á dvöl stendur.
  2. Loftgæði. Kolefnissameindir úr jafnefnaeldsneyti, kolum og öðrum efnum draga úr myndun D-vítamíns sem myndast með sólargeislum.
  3. Notkun sólarvarnar. Sólarvörn kemur í veg fyrir að húðin brenni af UVB geislum sólar. Það eru einmitt þessir geislar sem koma að myndun D-vítamíns og ætti því notkun sólarvarnar að draga úr D-vítamínmyndun. En það er lán í óláni að mjög fáir maka sólarvörninni nógu vel á sig til að útiloka alla sólargeislana eða nota sólarvörnina ekki nógu reglulega. Þetta veldur því að sólarvörn virðist hafa lítil áhrif á D-vítamínbúskap í flestum tilfellum þó áhrifin séu eflaust einhver.
  4. Hörundslitur. Melanín er litarefni húðarinnar. Melanín hindrar upptöku D-vítamíns frá sólargeislum. Því þurfa þeir sem eru dökkir á hörund lengri tíma í sólarljósi til að framleiða sama magn af D-vítamíni og þeir sem eru ljósari á hörund. Þetta er kostur fyrir okkur hér á landi þar sem flestir eru ljósir á hörund og myndun D-vítamíns er því góð þá þær fáu vikur á ári sem sólar nýtur við.
  5. Þyngd. Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem eru í ofþyngd eru líklegri til þess að vera með lélegan D-vítamínbúskap en þeir sem eru í kjörþyngd. Það hafa verið tilgátur með að ástæður þessa séu mögulega vegna þess að þeir eru eru yfir kjörþyngd neyti minna af D-vítamíni, njóti minna sólarljós og hreyfi sig minna utandyra.
  6. Aldur. Þeir sem eru eldri hafa minna af þeim efnum í húðinni sem breyta UVB geislunum sólarinnar í forvera D-vítamíns í líkamanum.

Hér má kynna sér nánar ávinning af D-vítamíni og ráðlagðan dagsskammt.

Related posts

Bleik október hugleiðing

Snyrtivörur og aðrar eitraðar vörur í umhverfi okkar

Forvarnir okkar eru að falla – Fljótum sofandi að feigðarósi