Ávarp

Kæru vinir og félagar, konur og menn.

Ykkur þakka ég, að starfi voru hefir skilað nokkuð áfram á síðustu áratugum, eftir að ég lét af embætti sem læknir. Þessu starfi hefir fylgt Guðs blessun. Ég þakka forsjón lífsins, að hún hefir vakið ykkur til skilnings á því og þýðingu þess fyrir land vort og þjóð.

Ég kynntist náttúrulækningastefnunni fyrst vestur í Ameríku, á hinu heimsfræga heilsuhæli Kelloggs. Árið 1921 dvaldi ég þar um þriggja vikna skeið, sem gestur Kelloggs. Þeim kynnum á ég mikið að þakka. Síðar kynntist ég sir Arbuthnot Lane. Hann stofnaði félag til umbóta á heilsu manna, og hann nefndi það New Health Society. Löngu áður hafði dr. Bircher-Benner byggt heilsuhæli í Zürich, sem ennþá er starfrækt eftir meir en 60 ár, og er heimsfræg stofnun. Hér á Norðurlöndum, í Svíþjóð, kom Waerland af stað stofnun til heilsuræktar, sem hann síðar og kona hans útbreiddu um allt Þýzkaland, og eru þau heimskunn orðin.

Í Danmörku stofnaði dr. K. Nolfi heilsuhælið Humlegården. Dr. Nolfi hafði fengið krabbamein í annað brjóstið, og óx það mjög hratt, en með sérstöku matarhæfi tókst henni að lækna það. Upp úr því stofnaði hún hælið Humlegården, sem frægt er um öll Norðurlönd.

Bæði Waerland og dr. K. Nolfi hafa komið hingað til lands og flutt mörg ágæt erindi víðsvegar um landið.

En Íslendingar hafa verið fremur tómlátir fyrir þessu heilsuræktarstarfi. Mikill hluti læknastarfsins hefir farið til þess að lækna sjúkdómaeinkenni, frekar en orsakir þess að sjúkdómar verði til. En þeir sjúkdómar, sem við læknar eigum í höggi við, stafa af röngu matarhæfi, sem er steindautt og spillt í vali og matreiðslu.

Ég tel mig í mikilli þakkarskuld við þessa ágætis menn og stofnanir þeirra. Ég tel mig þó standa í miklu meiri þakkarskuld við ykkur vini mína, sem staðið hafa í stríðinu með mér við óvini mannlífsins, hrörnunarsjúkdóma, þar sem aðrir brugðust.

Jónas Kristjánsson, læknir.

Þetta ávarp birtist í 1. tbl. Heilsuverndar 1959.

Related posts

Bleik október hugleiðing

Snyrtivörur og aðrar eitraðar vörur í umhverfi okkar

Forvarnir okkar eru að falla – Fljótum sofandi að feigðarósi