Áramótakveðja

Náttúrulækningafélag Íslands (NLFÍ) óskar félagsmönnum, velunnurum og landsmönnum öllum gleðilegs árs og þakkar fyrir góðar stundir á árinu sem var að líða.

Árið 2017 var merkisár í sögu NLFÍ því félagið fagnaði 80 ára afmæli á árinu og var slegið upp til afmælishátíðar á Sauðárkróki í sumar af þessu tilefni.

Það er bjart framundan og hlökkum við hjá NLFÍ til ársins 2018 og munum við líkt og undanfarna átta áratugi leitast við að stuðla að heilsueflingu landsmanna, náttúruvernd og umhverfisvænni lífsháttum.

Með nýárskveðju,
Starfsfólk NLFÍ

Related posts

Yfirheyrslan – Sigurjón Ernir

Yfirheyrslan – Lovísa Rut

Grasaferð 29.júní