Spínatrúlla með kotasælu


Halldór kokkur á Heilsustofnun deildi þessari gómsætu og litríku uppskrift með okkur. Ekki skemmir fyrir að hún er í jólalitum. Verði ykkur að góðu.

400 gr. spínat ferskt eða frosið
2-3 egg, fer eftir stærð
1 laukur, smátt saxaður
3 hvítlauksrif
½ tsk. múskat
3 msk. heilhveitispelt eða byggmjöl
1 tsk. salt
1tsk. grófmalaður svartur pipar
1 dós kotasæla

Aðferð:
Ef spínatið er ferskt skal snöggsjóða það fyrst og setja strax í ísvatn og saxa það smátt. Laukurinn og hvítlaukurinn er svitaður á pönnu. Svo er öllu blandað vel saman nema kotasælunni.

Smjörpappír settur á bökunarplötu og spínatdeiginu smurt á ekki of þykkt þetta er svo bakað í ofni á 180 gráðum í 10-12 mínútur, tekið úr ofninum og látið kólna. Svo er kotasælunni smurt ofaná og rúllað upp.

Related posts

„Endurhæfing verði sjálfsagður hluti heilbrigðisþjónustunnar“

„Endurhæfing einn af hornsteinum heilbrigðisþjónustu“

Langvinnir verkir skerða lífsgæði fólks verulega