Nýtt vikunámskeið í HNLFÍ


Við vekjum athygli á áhugaverðu námskeiði eða dvöl á Heilsustofnun dagana 11.-18.nóvember n.k. AÐ LIFA LÍFINU HÆGAR OG LÆRA AÐ NJÓTA 7 daga heilsudvöl dagana 11.-18.nóvember 2012 LÍF ÁN STREITU Streita birtist í ýmsum myndum. Hún getur komið fram í líkamlegum einkennum, hugsun, hegðun og tilfinningalegum viðbrögðum. Markmið námskeiðsins er að læra að þekkja einkenni streitu, skoða hvað veldur, læra að hægja á og vera til staðar í augnablikinu. Kenndar eru aðferðir til að þekkja sína streituvalda og einkenni og fá innsýn inn í leiðir til að auka streituþol. Með fjarlægð frá daglegu amstri gefst tækifæri til að skoða eigin líðan og aðstæður og kynnast ólíkum leiðum til að takast á við streitu með það að markmiði að öðlast jafnvægi og ró í daglegt líf. Á námskeiðinu er lögð áhersla á heildræna nálgun með hollu mataræði, fræðslu, slökun og hugleiðslu, hæfilegri hreyfingu og útivist í fallegu umhverfi. Námskeiðið er fyrir alla þá sem vilja njóta lífsins betur, lifa lífinu aðeins hægar og huga að andlegri og líkamlegri líðan. Dvölin gefur einnig einstakt tækifæri til að taka upp nýjar og skynsamlegar leiðir hvað varðar hreyfingu, næringu og svefn. Innifalið á námskeiði og dagskrá: Ljúffengur og hollur matur – allir málsverðir Aðgangur að sundlaugum og baðhúsinu Kjarnalundi Aðgangur að líkamsrækt Yoga Gjörhygli-hugleiðsla – Mindfulness Fræðsla og hóptímar Skipulögð ganga Slökunartímar Leikfimi eða vatnsþrek Partanudd og val um leirbað/heilsubað/nálastungur Kvöldvaka Námskeiðsgögn og matreiðslubók Verð á mann kr.121.900,- Verð á mann kr.109.900,- ef bókað er fyrir 15.október Nánari upplýsingar og bókanir í síma 4830300 eða heilsu@hnlfi.is

Related posts

Vel heppnuð matþörungaferð

Matþörungaferð 21.september

Vel heppnað kryddjurtanámskeið