Námskeið – Aðlögun að lífrænum búskap – Fyrstu skrefin


Fræðslunámskeið á vegum Lífrænu akademíunnar fyrir bændur og annað áhugafólk um lífræna aðlögun, framleiðslureglur, leiðbeiningar, eftirlit, vottun, aðlögunarstuðning, vinnslu og markaðssetningu lífrænna afurða.

Námskeiðið verður haldið föstudaginn 6. maí 2016, kl. 11.00-16.00, Þarabakka 3 (3.h.), 109 Reykjavík (í Mjóddinni; næg bílastæði t.d. nærri Breiðholtskirkju).
Námskeiðsgjald er kr. 20.000. Innifalið í námskeiðinu er prentað fræðsluefni, allar glærur og eintak af Reglum Túns um lífræna framleiðslu, auk veitinga.

Tilkynningar um þátttöku skal senda á tun@tun.is fyrir kl. 12.00 fimmtudaginn 5. maí.
Nánari upplýsingar veita Ólafur Dýrmundsson (
oldyrm@gmail.com) og Gunnar Á. Gunnarsson (s. 511-1330 & 820-4130).

Lífræna akademían er samstarfsvettvangur þriggja fag- og hagsmunaaðila á sviði lífrænnar framleiðslu:
Bændasamtök Íslands         Verndun og ræktun – VOR         Vottunarstofan Tún ehf

Related posts

Snyrtivörur og aðrar eitraðar vörur í umhverfi okkar

Vel heppnuð matþörungaferð

Matþörungaferð 21.september