Matþörungaferð 21.september

Matþörungaferð NLFR verður farin laugardaginn 21. september nk. 
Tekið verður á móti fólki kl. 13:30 við Kópuvík í Innri Njarðvík, bílum lagt við Brekadal. 

Frítt fyrir félagsmenn, aðrir greiða 3.500

Fjaran þarna er auðug af matþörungum. Stutt ganga. Leiðsögumaður er Eydís Mary Jónsdóttir land- og umhverfisfræðingur Hún kennir að þekkja, tína og verka söl og annað girnilegt fjörumeti.

Þátttakendur þurfa að klæða sig eftir veðri, vera í vatnsheldum skóm,
helst stígvélum, og hafa með sér poka til að safna í, til dæmis strigapoka.
Gott að taka vatnsbrúsa með.Takmarkaður fjöldi kemst í þessa ferð, fólk verður að skrá sig en það má
gera með tvennum hætti:
Senda tölvupóst á nlfi@nlfi.is með nafni, kennitölu og símanúmeri eða hringja í 860-6525

Related posts

Vel heppnuð matþörungaferð

Vel heppnað kryddjurtanámskeið

Grasaferð NLFR 25.júní