Krossgötur/Aukum lífsgleðina – Nýtt námskeið

Sex daga námskeið frá sunnudegi til laugardags á Heilsustofnun í Hveragerði. 10 -16. febrúar.
Þetta námskeið er fyrir fólk á öllum aldri.

Langar þig að fá meira út úr lífinu?
Finnst þér þig vanta breytingu eða stefnu?
Vantar þig kjark til að stíga skrefið?

Á námskeiðinu fá þátttakendur leiðsögn og hvatningu til að skilgreina það sem skiptir þá máli, setja sér markmið og koma þeim í framkvæmd.

Lögð verður áhersla á að draga fram eigin styrkleika og nýta þá til þess að láta drauma rætast.
Einnig verður hugað að mataræði, hreyfingu, slökun og hugleiðslu og leiðum til að auka gleðina í lífinu.

Innifalið:
Gisting, ljúfengur og hollur matur, fræðsla og hóptímar, núvitund, jóga og göngur, leikfimi eða vatnsþrek, aðgangur að baðhúsi, sundlaugum og líkamsræktarsal.

Umsjón:
Matti Ósvald – markþjálf og heilsuráðgjafi
Margrét Grímsdóttir – hjúkrunarfræðingur
Geir Gunnar Markússon – næringarfræðingur
Þóra Sif Sigurðardóttir – íþróttafræðingur

Verð:165.000 kr.
20% afsláttur fyrir félagsmenn NLFR og NLFA

Related posts

Vel heppnuð matþörungaferð

Matþörungaferð 21.september

Vel heppnað kryddjurtanámskeið