Heilsuhelgi með Geir Gunnari Markússyni næringarfræðingi

29. nóvember – 1. desember eða 6.-8. desember

Hressandi en um leið afslappað námskeið í umhverfi Heilsustofnunar

Frábært tækifæri til þess að njóta lífsins og setja heilsuna í forgang og læra að bera ábyrgð á eigin heilsu.

Geir Gunnar mun kenna þátttakendum að:

  • bera ábyrgð á eigin heilsu
  • leggja áherslu á holla næringu og reglulegar máltíðir
  • gæta að góðri meltingu
  • gera hreyfingu að daglegri venju
  • setja svefninn í forgang
  • styrkja sig andlega
  • setja sér skýr heilsumarkmið
  • tileinka sér einfaldar reglur í heilsusamlegum lífsstíl

Innifalið: Gisting frá föstudegi til sunnudags, hollur og góður matur, aðgangur að líkamsrækt og sundlaugum. Á námskeiðinu er einnig boðið upp á jóga, slökun í vatni og hressandi útivist.

Verð: 59.000 (49.000 fyrir félagsmenn NLFR/NLFA).
Bókanir og nánari upplýsingar á heilsa@heilsustofnun.is sími: 483 0300

Related posts

Vel heppnuð matþörungaferð

Matþörungaferð 21.september

Vel heppnað kryddjurtanámskeið