Viðburðir í tilefni 80 ára afmælis NLFÍ

Þann 5. júlí n.k. fagnar Náttúrulækningafélag Íslands 80. ára afmæli sínu. Jónas Kristjánsson læknir stofnaði félagið ásamt öðru kjarnafólki á Sauðárkróki á Hótel Tindastóli. Þetta eru merk tímamót í sögu félagsins og því ýmislegt í gangi í tilefni afmælisársins m.a.:

Í undirbúningi er gerð heimildarmyndar um ævistarf Jónasar Kristjánssonar læknis og einn af stofnendum félagsins.  Af því tilefni biðlar félagið til þeirra sem þekkja til þessarar sögu á einn eða annan hátt að hafa sambandi við skrifstofu NLFÍ.

Haldið verður upp á afmælið við hátíðlega athöfn á Sauðárkróki þann 5. júlí í n.k.. Athöfnin fer fram í sal neðstu hæðar Heilbrigðisstofnunar Norðurlands. Lagður verður blómsveigur við minningarstein um þetta ótrúlega framsýna fólk sem hafði trú á líkamlega heilbrigði, jafnvægi og lífsgleði.  Þau boðuðu að heilbrigði er háð,  góðu mataræði, hæfilegri hreyfingu og hvíld.

Enn  í dag eru áherslur Náttúrulækningafélagsmanna á hávegum hafðar og var allt þetta fólk miklir hugsjónarmenn og langt á undan sinni samtíð.  Það boðaði forvarnir, þegar það þekktist varla.

Félagið hefur alltaf viljað stuðla að bættri heilsu landsmanna með fræðslu um holla lífshætti. Einkunnarorð félagsins er: Berum ábyrgð á eigin heilsu.

Related posts

Vel heppnuð matþörungaferð

Matþörungaferð 21.september

Vel heppnað kryddjurtanámskeið