Holla gulrótakakan


Nú þegar hausta tekur er um að gera að nota þær grænmetistegundir sem verið er að taka upp í bakstur og eldamennsku. Við rákumst á þessa heilsusamlegu gulrótarköku á blogginu Ljómandi.is sem er skrifað af Valdísi Sigurgeirsdóttur. Valdís deilir þar fróðleik og uppskriftum en tekur einnig einstaklega fallegar ljósmyndir af matnum sem hún töfrar fram. Við fengum að deila með ykkur þessari frábæru uppskrift af glúteinlausri gulrótarköku sem inniheldur engan hvítan sykur:

Meinholl gulrótarkaka

Innihald: / 200 g möndlumjöl / 3 msk kókoshveiti / 3/4 tsk matarsódi / 1 tsk vínsteinslyftiduft / 2 tsk kanill / 1 tsk engifer / 1/2 tsk múskat / smá salt / 3 egg / 1/2 bolli (110 g) kókosolía (fljótandi) / 1/2 bolli (140 g) hlynsíróp / 4 tsk vanilla extract / 100 g rifnar gulrætur.

  1. Stillið ofninn á 175 gr.
  2. Smyrjið 23 cm form að innan og setið bökunarpappír í botninn.
  3. Blandið þurrefnunum saman og geymið í skál.
  4. Blandið saman eggjum, kókosolíu, hlynsírópi og vanillu í hrærivél.
  5. Hellið síðan þurrefnunum út í og bætið rifnu gulrótunum varlega út í.
  6. Bakið í ca. 20 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn úr ef þið stingið í miðju kökunnar.
  7. Látið kólna alveg áður en þið setjið kremið á.

Krem: / 150 g rjómaostur / 50 g ósaltað smjör (við stofuhita) / 70 g sukrin melis eða flórsykur / 1 tsk vanillusykur (helst heimagerður) eða 1/2 tsk vanillu extract / 1 tsk sítrónusafi.

  1. Setjið allt í hrærivél og hrærið vel saman. Ef ykkur finnst kremið of þykkt er hægt að bæta einni teskeið af mjólk út í.
  2. Smyrjið á kökuna og skreytið með rifnum gulrætum
  3. Berið fram. 

Ef þið skoðið innihaldið þá sjáið þið að þessi dásemdar kaka er ekkert nema meinholl. Það er alveg hægt að njóta án þess að borða sykur og hveiti

Related posts

Bleik október hugleiðing

Sæt dressing með kóríander og myntu

Náttúrulegur og nærandi hlaupadrykkur