Gulrótar-engifer súpa fyrir 4

Gulrótar-engifer súpa fyrir 4.
Þessi súpa er fersk og sumarleg en yljar manni samt á kólnandi haustkvöldum.
Uppskrift
8 stórar gulrætur
3 avocado
5 bollar vatn
3 tsk.rifið engifer
Hálfur bolli ferskt kóríander
Sjávarsalt eftir smekk hvers og eins.

Best er að rífa niður gulræturnar og brytja avókadóið smátt og blanda saman við engiferið í matvinnusluvél. Vatnið er soðið sér og síðan blandað saman við grænmetismaukið og kóríander stráð yfir.

Related posts

Bleik október hugleiðing

Sæt dressing með kóríander og myntu

Náttúrulegur og nærandi hlaupadrykkur