Grískt salat

Á vef Fjarðarkaupa er uppskrift af litríku grísku kjúklingasalati með stökkum grillosti. Ég einfaldaði hana aðeins og notaði egg og hnetur í stað gúrku og avókadó eða lárperu eins hún heitir á ástkæra ylhýra. Notaði líka kjúklingalæri í stað bringu. Auðvelt er að skipta kjúklingnum út fyrir kartöflur, tofu, sveppi eða blómkál eins og hér er skráð í uppskriftina. Hafði naan brauð með og einfalda myntusósu. Grísk jógúrt, mynta, hvítlaukur og sjávarsalt.

Þú þarft:

  • 700 g blómkál
  • 1 poki klettasalat
  • 1 rauðlaukur
  • 1 stk grillostur
  • 1 glas litlir tómatar
  • Svartar ólífur að vild
  • hnetur að vild
  • 6 egg

Aðferð:

  1. Látið blómkálið eða kjúklingalærin marínerast í olíu í minnst hálftíma ásamt matskeið af ediki, hunangi og oreganó. Gott að bæta við aðeins af salti, pipar, skornum hvítlauk og myntu. Steikið á grillpönnu og skerið í hæfilega munnbita.
  2. Rífið grillostinn niður og látið hann steikjast varlega á pönnu. Snúið honum við þegar hann orðinn fallega gullbrúnn. Rífið hann niður í munnbita.
  3. Salatið er þvegið með smá sítrónusafa eða ediki til að gefa smá bit. Rauðlaukurinn skorinn í sneiðar og blandað við salatið. Tómatar og ólífur eru skornar í tvennt. Eggin soðin og skorin til helminga. Hneturnar ristaðar á þurri pönnu. Ég notaði jarðhnetur eða peanut en kasjúhnetur eða cashew eru örugglega ekki síðri.
  4. Raðið fallega í skál. Salatið og laukurinn neðst en annað eins og listrænn smekkur leyfir.

Mynd: Pálmi Jónasson

Related posts

Pasta með ólífum, kapers og harissa

Blómkálsbaka

Indverskur lax moilee