Hugmyndasamkeppni um framtíðaruppbyggingu á landi NLFÍ í Hveragerði – úrslit kynnt föstudaginn 3. júlí kl. 15:00
Náttúrulækningafélag Íslands (NLFÍ) í samvinnu við Arkitektafélag Íslands (AÍ) efndi í janúar 2020 til opinnar hugmyndasamkeppni um enduruppbyggingu Heilsustofnunar (HNLFÍ) og framtíðarskipulag á landi NLFÍ í Hveragerði þar sem starfsemi Heilsustofnunar er rekin. Leitast var eftir tillögum að heildarskipulagi sem innifelur m.a. endurnýjun á núverandi húsnæði Heilsustofnunar í áföngum, að hluta til eða öllu leyti. Dómnefndarfulltrúar voru tilnefndir af verkkaupa og Arkitektafélagi Íslands og hófust dómstörf í júní 2020 eftir að skilafresti tillagna lauk.
https://ai.is/hugmyndasamkeppni-um-framtidaruppbyggingu/
https://ai.is/wp-content/uploads/2020/02/NLF%C3%8D-Samkeppnisl%C3%BDsing-1.pdf
Innsendar tillögur voru 12 og reyndust 10 uppfylla skilyrði samkeppnislýsingarinnar og voru teknar til dóms.
Verðlaunaathöfnin hefst kl. 15:00, föstudaginn 3. júlí í Kapellunni á Heilsustofnun. Streymt verður frá athöfninni og er slóðin https://us02web.zoom.us/j/85980266112 – athugið að slóðina má einnig finna á heilsustofnun.is, ai.is og nlfi.is
Það má gjarnan hafa samband ef frekari upplýsingar vantar.
Tengiliðir:
Ingi Þór Jónsson formaður dómnefndar, s. 860-6525
Rebekka Rún Jóhannesdóttir verkefnastjóri dómnefndar, s. 844-8717