Sigurjón Danivalsson

Dánarminning Sigurjón Danivalsson framkvæmdastjóri N.L.F.Í.
F. 29/10 1900 D. 15/8 1958.
Vér sem að Náttúrulækningafélagi Íslands stöndum, höfum orðið fyrir því mótlæti að missa sterkustu stoð þess, Sigurjón Danivalsson, sem um nokkurra ára skeið hefir verið framkvæmdastjóri þess. Með því starfi sínu hefir hann miklu afkastað í þágu félags vors fyrst og fremst, en einnig í þágu almennrar heilbrigði. Það er mikil eftirsjá að þessum ágæta starfsmanni og vini. Það vita allir, sem kynnzt hafa þessu félagsstarfi voru, að það er til þess stofnað að rækta heilbrigði, í stað þess að berjast við sjúkdómseinkenni. Í þessu starfi var Sigurjón oss ómetanlegur liðsmaður. Komu þar fram hinir ágætu hæfileikar hans og áreiðanleiki, sem skapaði honum svo mikla tiltrú. Hann fann vanalega einhver ráð, þegar aðrir voru ráðþrota. Fyrir það er nú félag vort komið svo langt, að í heilsuhæli þess dvelja um 70 gestir, og hamingjan hefir verið svo hliðholl, að flestir fá einhvern bata og sumir ótrúlega mikinn. Vér getum þakkað þetta að miklu leyti vorum ágæta framkvæmdastjóra. Vér syrgjum þennan fórnfúsa vin vorn og starfsmann. Og vér spyrjum Hvar er svo ágætan mann að finna, sem geti tekið við starfi hans? Því að skarð hans er vandfyllt. En umfram allt þökkum vér Guði fyrir að hafa gefið oss svo ágætan samverkamann. Ég vissi ekki annað en Sigurjón Danivalsson væri í bezta lagi hraustur. Hann notaði hverja helgi til að ganga á skíðum í háfjöllum, oft í stórhríð, um hávetur. En ég hefi nú heyrt, að hann hafi fyrir allmörgum árum fengið veilu fyrir hjartað. Og nú hné hann niður fyrirvaralaust. Þetta kom oss vinum hans og samstarfsmönnum mjög á óvart. Eitt sinn var félag vort illa statt, og horfði óvænlega um framtíð þess. Ég leitaði þá ráða til snillingsins Gretars Fells, vinar míns. Hann benti mér á Sigurjón Danivalsson. Þetta ráð brást mér ekki. Þessi ágæti vinur tók föstum tökum á málum félags vors og reisti við fjárhag þess. Bygging heilsuhælisins var hafin, og hefir það nú starfað í full þrjú ár. Ég efast ekki um, að slíkum manni sem Sigurjóni Danivalssyni er ætlaður starfi í æðra heimi. Mér þykir heldur ekki ólíklegt, að hann horfi til vor, sem nú stöndum við starfið hér. Nú er þessi ágæti og trúi þjónn fallinn fyrir sverði þess, sem valdið hefir. Vér þökkum góðum Guði fyrir að hafa gefið oss þennan ágæta vin, sem unnið hefir að velferð og hjálp til handa hinum mörgu, er dvalið hafa í heilsuhæli félagsins. Jónas Kristjánsson. Þessi minning birtist í 3. tbl. Heilsuverndar 1958.

Related posts

Nýr pistlahöfundur

Gleðilegt nýtt ár

Ályktanir 39. landsþings Náttúrulækningafélags Íslands