60 ára afmæli Heilsustofnunar var haldið síðasta sunnudag og var afskaplega vel heppnað. Í Hveragerði mætti mikill fjöldi af fólki, um 700 manns, sem naut sín við að skoða sig um, taka þátt í skemmtilegri dagskránni og gæða sér á hollum veitingum. Var því einstaklega góð stemning sem kórónaðist í lok dags með frábærum leikþætti Elísabetar Jökulsdóttur þar sem leikararnir Sigurður Skúlason og Margrét Helga Jóhannsdóttir fóru á kostum.
Sjá myndir HÉR
Takk kærlega fyrir komuna allir og munum að bera ábyrgð á eigin heilsu!
Kv.
Náttúrulækningafélag Íslands