Fyrirlestrarveisla – Lifum betur

Glæsileg fyrirlestraveisla á netinu með 20 fyrirlestrum um heilsu og heilbrigðismál verður 31.október og 1.nóvember.

Margrét Grímsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsustofnun NLFÍ mun taka þátt í þessari fyrirlestraveislu. Í sínum fyrirlestri mun Margrét m.a. ræða helstu einkenni streitu, hvernig má þekkja hættumerkin svo hægt sé að grípa inn í og fyrirbyggja veikindi.
Sjálf hefur Margrét reynslu af langvinnri streitu og í þessum persónulega fyrirlestri ræðir hún einnig áhrifaríkar leiðir til þess að takast á við streitu bæði í lífi og starfi.
Frekari upplýsingar á heimasíðu viðburðarins.

Related posts

Nýr pistlahöfundur

Gleðilegt nýtt ár

Ályktanir 39. landsþings Náttúrulækningafélags Íslands