Ályktanir 38. landsþings Náttúrulækningafélags Íslands

Heilsueflandi samfélag

Landsþing hvetur stjórnvöld til að stuðla að heilsueflandi samfélagi með öllum tiltækum ráðum. Hæfileg hreyfing, nægur svefn, hvíld, hollt mataræði og jákvæð félagsleg gildi eru lykill að velferð allra landsmanna.

Einnig skorar Landsþing á skólayfirvöld að setja skýr mörk um notkun snjallsíma í grunnskólum.

Endurhæfing 

Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands hefur í áratugi vakið athygli á heildrænni meðferð í endurhæfingu og hefur sýnt sig að starfsemi hennar er mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustu landsins. Hún byggir á hreyfingu við hæfi, hvíld og heilsusamlegu mataræði í umvefjandi umhverfi.  Lögð er áhersla á að einstaklingurinn beri ábyrgð á eigin heilsu. Sjálfbærni og samfélagsleg ábyrgð eru hornsteinar Heilsustofnunar. Landsþing hvetur stjórnvöld til þess að huga betur að endurhæfingu og forvarnagildum á Íslandi.

Nikótínpúðar og orkudrykkir

Landsþing NLFÍ hvetur til átaks í fræðslu um skaðsemi munntóbaks, sérstaklega í formi tilbúinna nikotínpúða. Aukin notkun nikótínpúða meðal barna og unglinga er áhyggjuefni en fæst þeirra hafa neytt nikótíns í öðru formi.

Neysla koffín- og orkudrykkja getur valdið svefnleysi og ýmsum kvillum hjá börnum og fullorðnum en efla þarf fræðslu um þessa tegund drykkja.

Umhverfis- og loftlagsmál

Landsþing NLFÍ skorar á íslensk stjórnvöld að grípa tafarlaust til afdráttarlausra og öflugra aðgerða til að snúa við þeirri ógnvænlegu þróun sem nú blasir við í loftslagsmálum og ógnar öllu lífríki. Einnig verður að standa vörð um ósnortin víðerni í náttúru Íslands og fyrirbyggja að mikill ágangur ferðamanna skaði viðkvæma náttúru Íslands.

Varðandi endurvinnslu er nauðsynlegt að samræma reglur um flokkun og endurvinnslu á landsvísu.

Lífrænn landbúnaður á Íslandi

Landsþing NLFÍ krefst þess að stjórnvöld hefji þegar í stað vinnu við aðgerðaáætlun um eflingu lífrænnar framleiðslu. Ísland stendur öðrum Evrópulöndum langt að baki á því sviði. Nú stefna lönd Evrópusambandsins að því að innan tíu ára (árið 2030) verði 25% nytjalands vottað lífrænt og er þar unnið eftir fjölþættri áætlun um þróunarstarf á sviði lífræns landbúnaðar, vöruþróunar og neytendamála. Í grannlöndum okkar er markvisst unnið að stigvaxandi notkun lífrænna matvæla í stóreldhúsum mennta-, öldrunar- og heilbrigðisstofnana. Lífrænar ræktunar- og eldisaðferðir draga úr gróðurhúsaáhrifum með aukinni bindingu kolefnis í landbúnaði og rannsóknir staðfesta að þær skila hreinni matvælum með fjölþættari næringarsamsetningu.

Landsþing bendir á að tryggja þarf að ákvæðum reglugerðar um merkingar á matvælum sem framleidd eru úr erfðabreyttum lífverum og afurðum þeirra sé framfylgt. Tryggja þarf að upprunamerkingar matvæla séu réttar og greinilegar.

Related posts

Nýr pistlahöfundur

Gleðilegt nýtt ár

Ályktanir 39. landsþings Náttúrulækningafélags Íslands