Aðsetur
Félagsheimilið Kjarni, Kjarnaskógi
Netfang: nlfa@simnet.is
Sími: 462-1995
Kennitala: 480269-7219
Náttúrulækningafélag Akureyrar
Þann 27. ágúst árið 1944, kom Jónas Kristjánsson, læknir, forseti Náttúrlækningafélags Íslands, ásamt Birni L. Jónssyni veðurfræðingi, síðar lækni, og þáverandi varaforseta NLFÍ til fundar á Akureyri í þeim tilgangi að stofna náttúrulækningafélag á Akureyri, en orðspor af hugsjón Jónasar , frumkvöðuls náttúrulækningastefnunnar á Íslandi, hafði borist til Akureyrar, og vakið umtal og áhuga.
Björn og Jónas héldu erindi um tilgang og stefnu NLFÍ, og fundarmenn samþykktu stofnun Náttúrulækningafélags Akureyrar (NLFA) sem varð deild í Náttúrulækningafélagi Íslands. 58 manns innrituðust í félagið á stofnfundinum. Síðan hefur félagið vaxið og dafnað ogtelur nú á fimmta hundrað félaga.
Fyrstu þrjá áratugina mótaðist starfsemi NLFA ekki hvað síst af því að vekja áhuga bæjarbúa á þýðingu heilsufæðis, í því skyni var sett upp verslun með heilsuvörur og keypt kornmölunarvél sem malaði allt að níu tonnum af korni á ári.
Á þessum árum lagði félagið jafnframt ýmsum verkefnum NLFÍ lið, en þá var verið að safna fé til uppbyggingar Heilsuhælisins í Hveragerði. Árið 1979 var fyrsta skóflustungan tekin að byggingu heilsuhælis á Norðurlandi, enda þá komið vilyrði heilbrigðisyfirvalda um þjónustukaup. Fjórtán árum síðar, eða um haustið 1993 er stórhýsið Kjarnalundur risið og þar haldið landsþing NLFÍ.
Vorið 1994 þótti fullreynt að heilbrigðisyfirvöld ætluðu ekki að standa við marggefin fyrirheit um þjónustukaup. Var þá Kjarnalundur leigður út til hótelrekstrar og síðar rak Akureyrarbær þar dvalarheimili fyrir aldraða.
Húsið var síðan selt árið 2004 og hófst þá undirbúningur að byggingu félagsheimilis NLFA. 4. nóvember 2006 var félagsheimilið NLFA vígt með glæsibrag. Fjöldi gesta samglöddust NLFA á þessum tímamótum enda er húsið og umhverfi þess allt hið glæsilegasta.
Félagsheimili NLFA sem hefur hlotið nafnið Kjarni kemur til með að þjóna starfsemi félagsins auk útleigu til félagasamtaka og einstaklinga.
Stjórn NLFA
Inga Lóa Birgisdóttir, formaður
Unnsteinn Tryggvason, varaformaður
Margrét Alfreðsdóttir, gjaldkeri
Sólveig Bennýjar Haraldsdóttir, ritari og formaður fræðslunefndar
Varamenn
Sigrún Jóna Daðadóttir
Kristín Kolbeinsdóttir
Formaður húsnefndar og stjórnarmaður
Stefán Jóhannesson