Lífsgæði jukust um 19 prósent hjá þeim sem fóru í endurhæfingu eftir Covid-19 hjá Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Þetta kom fram í erindi Guðrún Karlsdóttur framkvæmdastjóra lækninga á Heilsustofnun NLFÍ á Læknadögum 2026.
Heilsustofnun hóf árið 2020 endurhæfingu eftir Covid-19 á sérstakri meðferðarlínu sem nú hefur verið sameinuð verkjalínu. Um 200 hafa lokið post-covid endurhæfingu á Heilsustofnun, þar af nokkrir sem voru með síþreytu eða ME af öðrum orsökum en fengu meðferð á post-covid línu. Allt að helmingu þessa hóps voru með ME sem afleiðingu af Covid-19. Sérþekking fagfólks Heilsustofnunar á meðferð við afleiðingum Covid-19 sýkinga og annarra alvarlegra sjúkdóma eins og ME og síþreytu hefur aukið aðsókn í meðferð.
Teknar voru út árangursmælingar fyrir þá sem voru í post-covid endurhæfingu. Eins og sjá má á töflunni hér að neðan urðu verulegar framfarir við meðferð. Kvarðinn lífsgæði er meðaltal annarra mælikvarða og var meðaltalsbæting 19 prósent.
Hér má sjá umfjöllun um heimildarmynd um langvinnt Covid og ME.
Hér er sagt frá því að eldri konur eru líklegri til að fá langvinnt Covid.
Hér segir frá ávinningi af endurhæfingu á langvinnum einkennum Covid.
Hér er fjallað um viðamikla rannsókn á langvinnum einkennum Covid.
Hér segir að 400 milljónir manna séu með langvarandi einkenni Covid.