Verslunarmannajól

Jólin eru á næsta leyti. Þau verða hringd inn eftir tæplega mánuð. Jólin eru frábærlega skemmtilegur tími þar sem fjölskyldur hittast í veislumat og gefa dýrar gjafir.
Við erum með verslunarmannahelgi í byrjun ágúst en þegar verslunarmannahelgin er afstaðin tekur við verslunarmannajól og þar tekur við neysla á jólavörum en ekki öli eins um verslunarmannahelgina. Verslunarmannajólin eru hafin í lok september í verslunum með sölu á jólasmákökum, jólaseríum og öðru jóladóti. Ekki minnkar nú neysluhyggjan þegar við tökum upp ameríska siði í verslunarháttum og höldum svartan föstudag og  rafrænan mánudag heilagan.

Við Íslendingar megum alveg fara að hægja á okkur í neyslunni og fara að njóta meira jólaundirbúningsins án þess að þurfa að eyða pening í gjafir, jólahlaðborð, jólatónleika, jólaglögg, jólaskemmtun, jólapeysu, jólabjór eða jólautanlandsferð. Jólin snúast ekki um allar dýru gjafirnar undir jólatrénu heldur miklum frekar um góða jólaandann og hamingjuna frá fólkinu í kringum jólatréð.
Hvernig væri að fara að eyða bara tíma með okkar nánustu og heimsækja ömmu gömlu á elliheimilið? Það sem okkar nánustu vilja er ekki nýjasta dótið heldur miklu frekar tími með okkur.
Það væri mikill jólaandi í því að hafa símalausa daga á heimilinu alla aðventusunnudagana. Notum sunnudagana á aðventunni saman með fjölskyldunni í göngutúr í Heiðmörk, heitt súkkulaði á kaffihúsi á eftir, spila og leika þegar heim er komið og bara að lifa og njóta að hanga saman…..án þess að allir séu að hanga í símum „snjall“símum.
Notum jólamánuðina í að gefa meira af okkur í knúsi og góðmennsku. Mætum í vinnu og knúsum Siggu á þjónustuborðinu og hrósum henni fyrir brosið hennar. Brosum á móti öllum í kringum okkur og knúsum þá extra vel sem við höldum að þurfi á góðu knúsi að halda, munið þó #metoo byltinguna og engan dónaskap.

Við eigum öll alveg nóg af dóti og drasli. Kompan mín og bílskúrinn eru full af einhverju óþarfa dóti sem ég hef fengið í gjafir eða keypt í gengum árin. Ég var rétt í þessu að reyna að skrifa árlegan jólagjafalista áðan til að senda á mín nánustu fjölskyldu (að þeirra ósk J) og þegar ég var búinn að skrifa niður óskirnar um að fá bækurnar frá Arnaldi eða Yrsu í jólagjöf var ég stopp. Mig vantar gjörsamlega ekki neitt og þarf ekkert sem ég á ekki nú þegar. Þetta held ég að eigi við mjög stóran hluta okkar Íslendinga. Ég á fjölskyldu sem ég elska útaf lífinu og þak yfir höfuðið, það er nóg fyrir mig. Hins vegar væri ég til í meiri nætursvefn, meiri gæðatíma með eiginkonunni og dætrum, minna stress og aðeins meiri hugarró. Þeir hlutir sem við virkilega þurfum getum við ekki skrifað  á óskalista því þá er ekki hægt að kaupa. Því fyrr sem við áttum okkur á þessu því betra. Jólin munu líka verða mun innihaldsríkari ef við horfum meira inn á við í stað þess að hugsa bara í hlutum.
Í stað allra þessara jólagjafa ættum við að gefa meira í hjálparsamtök eins og Samhjálp, Rauða Krossinn, Mæðrastyrksnefnd, Konukot, Barnaheill, SOS Barnaþorp eða bara hvert sem er í kringum ykkur sem þið telið að þurfi virkilega á peningum að halda. Því það er til fólk á þessu landi sem nær ekki að halda gleðileg jól fyrir sig og sína því það á ekki húsaskjól, getur ekki borgað húsaleiguna, og getur ekki keypt sér jólamatinn og hvað þá að fara á Baggalútstónleika. Í stað þess að eyða hundruðum þúsunda í að halda jólin með öllum gjöfunum, skreytingum, dýra matnum og nýju jólafötunum á alla fjölskylduna ættum við að slá af þessum klikkuðu kröfum okkar og eyða a.m.k. 100.000 kr í góðgerðarmál. Sú gjöf mun gefa margfalt tilbaka.

Við hjá NLFÍ viljum líka alltaf að landsmenn hugi að sinni heilsu og ef eitthvað er heilsusamlegt þá er það að minnka neyslunhyggjuna um jólin. Ef við minnkum neysluna hugum við að heilsu okkar með minni skömmtum í mat og drykk, hugum að andlegu heilsu okkar og okkar nánustu með því að eyða meiri gæðastundum með þeim, við sofum betur, erum minna stressuð og minni neyslu fer líka betur með móður Jörð. Þannig að allir græða, nema þá kannski verslunarfólkið. En það fær þá bara meiri hvíld í jólamánuðnum, innkoman verður minni en þau munu þá vera með okkur hinum í minni neysluhyggju.

Í lokin er vert að telja niður ýmislegt mikilvægt í lífinu sem peningar geta ekki keypt:
– Rúm en ekki svefn
– Tölvu en ekki heila
– Mat en ekki matarlyst
– Hús en ekki heimili
– Lyf en ekki heilsu
– Lúxus en menningu
– Skemmtun en ekki hamingju
– Kunningja en ekki vini
– Hlýðni en ekki trygglyndi
– Kynlíf en ekki ást

Munum að lifa og njóta jólanna í stað þess að lifa og kaupa.

Geir Gunnar Markússon
ritstjori@nlfi.is

Related posts

Gervilíf

Saga skógræktar á Íslandi

Bleik október hugleiðing