Innihald þessa pistils fjallar um þann mikla tíma sem við eyðum fyrir framan tölvuskjái og sjónvarp nú á dögum.
Við erum að drukkna í framboði á afþreyingarefni og tölvutækjum og þurfum virkilega að fara að hugsa okkar hvernig við ætlum að umgangast alla þessa tækni til að bera ábyrgð á heilsu okkar. Því ef ekki mun þessi öra tækniþróun gleypa okkur sem félagsverur með skapandi hugsun.
Framboðið á afþreyingarefni í sjónvarpi og tölvum er geigvænlegt í dag. Má þar t.d. nefna að á nánast hverju einasta heimili á Íslandi eru í boði hundruðir sjónvarpsstöðva sem keyra allan sólarhringinn, vídeoleigur í sjónvarpinu, Netflix, Hulu, Disney+, Amazon Prime, Plex, o.fl. Í tölvum heimilisins má einnig nálgast nánast hvað sem hugurinn girnist í gegnum Netið.
Þessi tækniþróun hefur valdið því að mörg ungabörn sem eru varla farin að tala, kunna á nýjustu græjur heimilisins eins og Ipad og snjallsíma.
Það hafa orðið ótrúlegar tækniframfarir á undanförum áratugum. Fyrir um fjórum áratugum þegar ég var að alast upp man ég eftir að hafa horft á vikulegan þýskan þátt um rannsóknarlögreglumanninn Derrick og einnig sápuóperu um líf og ástir Ewing olíufjölskyldunnar í þættinum Dallas. Barnaefnið var Stundin okkar, Línan, Tommi&Jenni og Húsið á sléttunni á sunndögum.
Þótt ótrúlegt megi virðast þá hlakkaði ég alltaf til að horfa á þessa þætti. Þetta var sjónvarpsefni þessa tíma og „toppurinn“ á þessu sjónvarpsframboði voru svo sjónvarpslausir fimmtudagar!
Leikjatölvur voru að koma til sögunnar á unglingsárum mínum og þá tók a.m.k. fimm mínútur að láta Atari leikjatölvuna keyra upp leikinn. Líf mitt gekk ekki út á tölvur og sjónvarp, ég kunni að leika mér úti með vinum mínum. Í dag þakka ég fyrir að hafa alist upp við sjónvarpslausa fimmtudaga, sérstaklega þegar ég sé hvað tölvutæknin er að gera ungu kynslóðinni nú til dags.
Ég held að fáir nútímamenn geti ímyndað sér það að kveikja ekki á sjónvarpinu eða fara ekki á samfélagsmiðla í heilan dag. Við erum með símann nettengdan hvar sem er. Fólk er hætt að hittast án þess að vera endalaust á samskiptamiðlum og netinu. Það er t.d. orðið mjög sorglegt að hitta vini sína í dag, því hver og einn er í símanum án þess að eiga samskipti við raunverulega vini sína, allir eru á netinu að tengjast tölvuvinum sínum eða horfa á misvitra áhrifavalda.
Við lifum sannarlega á tækniöld og þeir sem vinna í tækni- og tölvugeiranum eru á fullu að finna upp leiðir til að gera líf okkar „auðveldara“ og „þægilegra“ en um leið mun ómanneskjulegra! Tæknin hugsar ekki um djúpar mannlegar tilfinningar, þrár og þarfir. Viljum við virkilega líf sem er allt tölvutengt en algjörlega ómannlegt? Við þurfum að læra að nota tækni framtíðarinnar eins og t.d. gervigreindina án þess að tæknin taki yfir líf okkar og geri okkur að tilfinningalausum og sjálfvirkum tölvuverum.
Því það er vissulega margt ágætt við tæknina t.d. víkkar hún sjóndeildarhring okkar, auðveldar samskipti, eykur sjálfvirkni, stuðlar að umhverfisvernd og dregur úr eyðingu regnskóga en á móti verðum við að læra að láta tæknina ekki stjórna lífi okkar sem mannverur.
Ein leið til þess að við tökum við stjórninni frá tölvunum væri að taka aftur upp sjónvarpslausa fimmtudaga, sem yrði reyndar kallaður tölvulaus fimmtudagur í dag. Einu sinni í viku ættum við að slökkva á tölvum, snjallsímum og sjónvarpi og eiga góða stund með okkar nánustu eða bara stund með okkur sjálfum. Það eru mjög margir sem munu eiga mjög erfitt með þetta, því tæknin er orðin svo stór hluti af lífi okkar.
Ef markmiðið með heilan dag án tækja er óraunhæft má byrja á t.d. eftirmiðdegi og að slökkva á síma og sjónvarpi eftir kl.17 einn dag í viku. Það er líka bara sniðugt að slökkva á tækjum í 5-15 mínútur á dag og taka slökun eða núvitundaræfingu á móti öllu stressinu.
Við erum komin frá náttúrunni og sameinumst henni aftur þegar við kveðjum þennan heim og verðum að mold. Lifum því sem mannverur í náttúrunni sem við fæddumst í en ekki sem tölvuverur í tölvuheimi.
Skrifað af Geir Gunnari Markússyni, ritstjori@nlfi.is